Jón Kristinn Þorgeirsson vann Karl Egil Steingrímsson í fyrstu umferðinni í gær. Mynd: IEB

FIDE-meistarinn Jón Kristinn Þorgeirsson (2275) er efstur með 3½ vinning á Skákþingi Norðlendinga að loknum fjórum umferðum sem fram fóru í gær. Mótið fer fram á Húsavík. Tefld var atskák. Örn Leó Jóhannsson (2236) og alþjóðlegi meistarinn Áskell Örn Kárason (2186) koma næstir með 3 vinninga.

Í lokaumferðunum þremur verður tefld kappskák. Tvær umferðir fara fram í dag og lokaumferðin á morgun.

 

- Auglýsing -