Kvika Reykjavíkurskákmótið hefst 6. apríl í Hörpu. Það stefnir í metþátttöku á mótinu en nú þegar aðeins 11 dagar eru í mót eru 284 keppendur frá 49 löndum skráðir til leiks. Núverandi met er frá 2015 þegar 272 skákmenn tóku þátt.
Íslendingar eru flestir eða 69 talsins. Næstir eru Englendingar (31), Indverjar (27), Þjóðverjar (26), Svíar (18) og Bandaríkjamenn (17). Það er ánægjulegt að sjá fimm Úkraínumenn á keppendalistanum og mögulega mæta fleiri slíkir til leiks enda sérstaklega boðið. Enginn Rússi er skráður til leiks.
Þátttökutölurnar í ár verðast að teljast afar góðar. Ekki síst mið tilliti til heimsfaraldurs auk þess sem mótið rekst á EM einstaklinga í Slóveníu þar sem um 320 keppendur taka þátt. Þar með talið Hannes Hlífar Stefánsson og Guðmundur Kjartansson sem verður sárt saknað í ár.
Af keppendum 284 eru 23 stórmeistarar og 32 alþjóðlegir meistarar.

Stórmeistarinn Hjörvar Steinn Grétarsson (2554) er stigahæstur heimavarnarliðsins en næstir eru alþjóðlegi meistarinn Vignir Vatnar Stefánsson (2477), sem freistar þess að ná lokaáfanga stórmeistaratitils og Helgi Áss Grétarsson (2467).
Indverjar setja svip sinn á mótið og eiga 5 af 6 stigahæstu keppendum mótsins. Adhiban og Gupta sem báðir hafa unnið mótið eru stigahæstir. Þriðji á keppendalistanum er Íraninn Poya Idani. Meðal keppenda á mótinu er yngsti stórmeistari allra tíma, Abhimanyu Mishra sem er aðeins 13 ára.

Meðal öflugra skákkvenna má nefna Dinöru Saduakassova frá Kasakstan og Tönju Sadchev frá Indlandi.
Fremstan í flokki í goðsagnanna má nefna Oleg Romanishin frá Úkraínu. Margfaldan ólympíumeistara fyrir þjóð sína. Mjög ánægjulegt að hafa fengið hann til leiks frá hina stríðshrjáða landi.
Keppendalistann má finna á Chess-Results.
Enn er opið fyrir skráningu í mótið. Það styttist þó í að henni verði lokið og eru Íslendingar sem hyggjast taka þátt hvattir til að skrá sig sem fyrst til leiks. Minnt er á að hægt er að taka þrjár hálfs vinnings yfirsetur í umferðum 1-7.
Að sjálfsögðu verður mikið um sérviðburði og má þar nefna Pub Quiz og Harpa Blitz.
Ætlar þú missa af veislunni?
















