Röð efstu manna er meira og minna óbreytt eftir mjög skemmtilega 5. umferð á Íslandsmótinu í skák sem fram fer við glæsilegar aðstæður í Bankanum – Vinnustofu á Selfossi.
Efstu menn fyrir umferðina voru þeir Hannes Hlífar Stefánsson og Hjörvar Steinn Grétarsson. Þeir gerðu báðir jafntefli í sínum skákum og í raun var það aðeins Vignir Vatnar Stefánsson sem blandaði sér almennilega í toppbaráttuna.
Vignir blandaði sér í baráttuna með nokkuð þægilegum sigri gegn Braga Þorfinnssyni. Vignir virtist einfaldlega hafa meira fram að færa í byrjuninni og fékk mjög þægilega stöðu úr Katalan byrjuninni. Snemma miðtafls kostuðu stöðuyfirburðirnir skiptamun og tiltölulega auðveldur vinningur kominn í hús.
Hjörvar og Guðmundur Kjartansson tefldu nokkuð þunga skák í Ítalanum. Hjörvar virtist hafa örlítið frumkvæði en náði ekki að spila úr því og Guðmundur komst í endatafl þar sem hann stóð líklega betur með hrók/biskup og fjarlægjan frelsingja gegn hrók/riddara. Hjörvar náði að vera nægjanlega virkur til þess að einfalda niður í jafntefli.
Áður en við skoðum gang mála í skák Hannesar og Héðins sem var tvímælalaust skák umferðarinnar þá skulum við „afgreiða“ hinar.
Stigalægstu skákmenn mótsins Alexander Oliver Mai og Símon Þórhallsson áttust við og Alexander hafði betur. Hann fékk góða útgáfu af Sikileyjarvörninni og náði að veikja peð svarts og mikið og vinna lið.
Hilmir Freyr Heimisson og Þröstur Þórhallsson tefldu mikla baráttu skák en Þröstur sýndi svo sannarlega klærnar og tefldi eins og herforingi og hafði sigurinn að þessu sinni.
Þá komum við að skák dagins og þar var sannarlega drama á ferð! Héðinn og Hannes endurtóku í byrjun skák Hjörvars og Hannesar frá 3. umferð. Hannes breytti útaf með því að leika 10…h4 í stað 10…Re4 sem hann lék gegn Hjörvari.
Héðinn virtist vel undirbúinn að Hannes greinilega einnig skoðað þessar stöðutýpur og mikil stöðubarátta fór í gang. Héðinn hafði líklegast betri stöðu en náði ekki að finna bestu leiðirnar, líkt og í fyrri umferðum þá fer oft of mikill tími í „yfirvöldun“ í stað þess að taka afgerandi ákvarðanir. Hvítur missir líklega allt sitt frumkvæði með 21.f3?
Ákvörðunarfælnin kom hvað best í ljós þegar hvítur í stað þess að leik e4 með fínu tafli valdi frekar að leika biðleikjum, 31.Kh1 og 32.Db3?!
Hannes átti mjög athyglisverða leið til að reyna að refsa þessu í 32. leik.
Hér hefði 32…g4!? verið einstaklega athyglisverður leikur, sérstaklega þar sem hvítur var undir smá tímapressu. Hugmyndin er að ef hvítur drepur 33.hxg4 þá kemur 33…h3 og svartur brýst í gegn. 33.fxg4 býður upp á að drepa á e3 tvisvar og leika svo Df6-f1-f4 með skák í báðum tilvikum og svartur stendur mun betur.
Hannes sleppti Héðni úr netinu þarna en það hefði verið virkilega erfitt að eiga við 32…g4!? í tímahrakinu. Þess í stað tefldist áfram og aftur fékk Hannes sannkallað dauðafæri eftir 35.Dd3??
Hér hefst barátta Hannesar við „röntgentaktíkina“ eða hinn svokallaða x-ray. 35…Rxe3! hefði tryggt svörtum gjörunnið tafl. Eftir 36.Hxe3 kemur stórkostlegur leikur….
36…g4!! (það eru ekki til nógu mörg upphrópunarmerki fyrir svona leiki!)
Ótrúlegt en satt getur hvítur ekki varist hótuninni að drepa á e1 með góðu móti án þess að tapa liði. 37.Hxe7 Dxe1+! 38.Hxe1 Hxe1+ 39.Kh1 g3#
Þetta framhald hefði komið Hannesi í heimsfréttirnar!
Hannes lék þess í stað 35…g4 sem er næstbesti leikurinn en dugar líklega ekki til vinnings.
En viti menn, AFTUR fékk Hannes séns á að notfæra sér x-ray taktíkina. 39.Rb3?? var skelfilegur
39…a4?? hjá Hannesi var ekki rétta framhaldið en það var leikurinn sem Hannes lék. 39…Rxg2!! hefði hinsvegar aftur unnið í gegnum „röntgenfræði“. Ef hvítur drepur á e7 kemur Rxe1 (röntgen!) og þar sem drottningin er oní er svartur að vinna lið. Flækjustigið var kannski að sjá að eftir 40.Kxg2 drepur svartur tvisvar á e2, skákar svo á g3 og drepur með skák á h3 áður en hann drepur riddarann á b3.
Eftir 40.Rd2?? fékk Hannes aftur séns á sömu taktík. Í þetta skiptið hefði Rxg2 líklega líka dugað en 40…Rc2 hefði klárað dæmið.
Síðasti séns Hannesar var mögulega hér með 47…Dxc2 og fá sér svo drottningu. Líklegast ætti hvítur að halda því en endataflið eftir það var líklega alltaf jafntefli þó sénsarnir hafi enn legið hjá Hannesi. Mögnuð skák og magnað drama! Þriðja skiptið sem Héðinn sleppur frá töpuðu tafli, er meistaraheppni hér á ferð?
Yfirferð á skákinni á engilsaxnesku:
Efstu menn halda því sinni stöðu en Vignir Vatnar vinnur aðeins á. Fimm skákmenn eiga mjög raunhæfan séns á því að vinna titilinn ennþá!

Skákirnar eru sýndar þráðbeint á netinu. Skákvarp Ingvars Þór Jóhannessonar hefst að jafnaði rúmlega klukkustund eftir upphaf umferðar.
Einnig er hægt að fylgjast með á Facebook-síðu íslenskra skákmanna.
Skákvarp 5. umferðar:














