Norski heimsmeistarinn Magnús Carlsen (2864) gerði jafntefli við Aryan Tari (2654) í 7. umferð Norway Chess í gær. Hann tapaði svo bráðabananum og fékk því aðeins 1 stig með sér úr umferðinni.
Helsti andstæðingur hans Vishy Anand (2751) gerði einnig jafntefli en hann tefldi við Teimour Radjabov (2753). Hann vann hins vegar bráðabanann og minnkaði því muninn í í heimsmeistarann í aðeins hálft stig.
MVL (2750) og Mamedyarov (2770) eru í 3.-4. sæti og geta með góðum úrslitum í lokaumferðunum blandað sér í toppbaráttuna. Frakkinn vann Wesley So (2766) en Aserinn lagði Anish Giri (2744) að velli.
Frídagur er í dag. Carlsen mætir MVL í áttundu og næstsíðustu umferð sem fram fer á morgun. Anand teflir við Mamedyarov.
Fyrirkomulagið er þannig að tefld er kappskák. Sigurvegarinn fær 3 stig. Geri keppendur jafntefli fá báðir 1 stig. Þá er tefldur bráðabani og fær sigurvegarinn auka hálft stig. Keppendalistinn er áhugaverður. Vegna áskorendamótsins í Madrid sem hefst 17. júní tefla áskorendurnir ekki á Norway Chess að Radjabov undanskildum.

















