Guðmundur að tafli í Fagranesi. Mynd: Heimasíða mótsins.

Stórmeistarinn Guðmundur Kjartansson (2455) tapaði fyrir norður­make­dónsk­a FIDE-meistaranum Dragos Ceres (2380) í 4. umferð alþjóðlegs móts í Cattolica á Ítalíu sem fram fór í gær. Gummi hefur 2 vinninga.

Fimmta umferð fer fram í dag. Guðmundur teflir við indverska FIDE-meistarann Aness Mohamed (2243).

54 keppendur frá 19 löndum taka þátt og þar af 8 stórmeistarar. Guðmundur er 10. í stigaröð keppenda.

- Auglýsing -