Stórmeistarinn Margeir Pétursson (2437) gerði jafntefli við sænska stórmeistarann Jonathan Westerberg í 5. umferð Rilton Cup sem fram fór í gær. Margeir hefur 3½ vinning og er í 10.-33. sæti. Frídagur er í dag. Sjötta umferð fer fram á morgun.
Alls tefla 136 keppendur í efsta flokki hátíðinnar og þar af 20 stórmeistarar. Margeir er nr. 35 í stigaröð keppenda.
Bræðurnir Adam (1693) og Jósef Omarssynir (1539) tefla í Rilton Elo sem er fyrir stigalægri keppendur. Jósef vann og Adam tapaði. Þeir hafa báðir 2 vinninga.
- Heimasíða mótsins
- Beinar útsendingar (hefjast yfirleitt kl. 14:15)
- Auglýsing -

















