Alþjóðlegi meistarinn Vignir Vatnar Stefánsson (2461) vann serbneska stórmeistarann Dejan Pukula (2347) i fjórðu umferð Arandjelovac Open í Serbíu. Vignir hefur byrjað afar vel og hefur 3½ vinning og er í 1.-2. sæti.
Fimmta umferð fer fram á morgun. Þá teflir vignir alþjóðlega meistarann Savva Vetokhin (2388) sem teflir undir fána FIDE. Alexander Oliver Mai (2141) tapaði í dag.
Alls taka 48 skákmenn þátt frá 13 löndum. Þar af eru 13 stórmeistarar. Vignir er nr. 8 í stigaröð keppenda en Alexander er nr. 37.
- Chess Results
- Engar beinar útsendingar
- Auglýsing -