Vignir Vatnar við upphaf skákar í Serbíu. Að sjálfsögðu með Nocco.

Alþjóðlegi meistarinn Vignir Vatnar Stefánsson (2461) gerði jafntefli við alþjóðlega meistarann Savva Vetokhin (2388) sem teflir undir fána FIDE í fimmtu umferð Arandjelovac Open í Serbíu í dag. Vignir hefur 4 vinninga og er í 1.-2. sæti.

Sjötta umferð  fer fram á morgun. Þá teflir Vignir við búlgarska stórmeistarann Momchil Nikolov (2494).

Alexander Oliver Mai (2141) vann Serbann Ilshat Valitov (1854) í dag.

Alls taka 48 skákmenn þátt frá 13 löndum. Þar af eru 13 stórmeistarar.  Vignir er nr. 8 í stigaröð keppenda en Alexander er nr. 37.

- Auglýsing -