Magnús að tafli Mynd: Lennart Ootes/Tata Steel.

Augu skákheimsins voru enn á aftur á stigahæsta skákmanni sögunnar, Magnus Carlsen. Magnus var svo sannarlega með bakið upp við vegg í dag eftir að hafa tapað fyrri skákinni í 32 manna úrslitum á Heimsbikarmótinu í Baku gegn Þjóðverjanum unga Vincent Keymer. Wesley So er á heimleið en í 16 manna úrslitum kvennamegin tókst Koneru Humpy að koma í veg fyrir sömu örlög

Viðureignir dagsins

Vincent Keymer (2690) – Magnus Carlsen (2835)

Keymer nýtti sér mistök Carlsen í gær og vann nokkuð auðveldlega eftir skelfilegan afleik í endatafli. Í dag hafði Magnus hvítt og beitti spænska leiknum. Staðan var í gamla góða dýnamíska jafnvæginu, nóg af mönnum inná en þá lék Magnus kærileysislega 16.a3? Bxc3 17.Dxc3

Hér hefði Þjóðverjinn ungi nánast getað gert út um einvígið á staðnum! 17…Rxe4 hefði unnið eitt mikilvægasta peðið á borðinu þar sem hvítur getur ekki tekið til baka þar sem tveir menn yrðu oní, á h4 og e2 og svartur myndi vinna manninn til baka og tvö peð í kaupbæti!

Þjóðverjinn „redúseraði primitíft“ þess í stað, þ.e. var of ánægður með að skipta upp þar sem jafntefli hentaði honum. 17…Dxc3? var leikið og Magnus slapp með skrekkinn og gat teflt taflið!

Eftir að hafa sloppið tók hinn rétti Magnus við, einn besti ef ekki besti endataflsskákmaður allra tíma. Magnus yfirspilaði andstæðing sinn án þess að hægt sé í raun að finna einhvern afgerandi afleik hjá Keymer í stöðu þar sem jafnt var á liði.

Mögulega var 37…a4 í stöðunni hér ónákvæmur.

Magnus lék 38.Bc3 axb3 og 39.Kb2 og er kominn með frípeð á a-línunni sem varð örlagavaldur í skákinni. Magnus kom peðinu á a7 eftir miklar tilfæringar og tryggði sig í bráðabana einvígi á morgun!

Úrslit: Förum í bráðabana

Hikaru Nakamura (2787) – Pragganandhaa (2690)

Pragga hafði hvítt en þeir félagar gerðu jafntefli í fyrri skákinni í gær. Indverjinn ungi fékk aðeins meira rými að vinna með en Nakamura hélt sig í skotgröfunum og gaf ekki færi á sér. Þegar Naka komst í mislingaendatafl virtist jafnteflið tryggt sem og bráðabaninn.

Skýringar Nakamura:

Úrslit: Förum í bráðabana

Wesley So (2769) – Alexei Sarana (2685) 

Wesley tapaði í gær með svörtu og hann virtist einfaldlega skorta baráttuþrek, trú á sjálfum sér eða bæði!

Wesley So tefldi ekki eins og maður sem var að berjast fyrir lífi sínu í mótinu, hann tefldi eins og honum langaði heim!

Teflt var teoría í Grunfeld og Wesley reyndi ekki einu sinni að hanga á umframpeði sínu, þó það gæfi ekki neitt og var einn af þeim fyrstu að semja jafntefli með 1:11 á klukkunni gegn 1:18 hjá Sarana. Vonbrigði fyrir aðdáendur Wesley So.

Úrslit: Alexei Sarana óvænt áfram 1,5-0,5

 

Peter Svidler(2688)  – Nijat Abasov (2632)

Jafntefli varð í fyrri skákinni og Peter Svidler hélt nokkuð auðveldlega með svörtu. Byrjunin hjá þeim var ekki ósvipuð byrjuninni hjá Sarana-So, mjög keimlíkt afbrigði í Grunfeld.

Úrslit: Förum í bráðabana

 

Ray Robson (2689) – Fabiano Caruana (2782)

Fabiano hafði hvítt í skák dagsins og upp kom spænskur leikur. Caruana fórnaði peði en fékk í staðinn hættulega kóngssókn, drap á h6 og veikti svörtu kóngsstöðuna. Staðan var líklega mjög erfið þegar Ray Robson gerði samlanda sínum auðvelt fyrir með 25…Bb6? og yfirsást framhald Fabi…

26.dxe5! svartur hefur ekki tíma til þess að drepa á a5 útaf Dxf4 og veikleikanum á h6. Svarta staðan hrynur því og Robson gafst upp eftir 26…dxe6 27.Hxe5

Úrslit: Fabiano áfram 1,5-0,5

 

Salem A R Saleh (2661) – Daniele Vocaturo (2609)

Skildu jafnir í báðum

Úrslit: Förum í bráðabana

 

Radoslaw Wojtaszek (2676) – Leinier Dominguez (2739)

Tveir gríðarlega traustir skákmenn, ekkert óvænt hér og tvö jafntefli

Úrslit: Förum í bráðabana

Jan-Krzysztof Duda (2732) – Parham Magsoodloo (2719)

Ríkjandi meistari, Pólverjinn Duda, hafði hvítt gegn Magsoodloo í seinni skákinni eftir jafntefli í þeirri fyrri. Duda náði að setja smá pressu á Íranann og var peði yfir í hróksendatafli en sá íranski varðist af mikilli seiglu og tryggði bráðabana.

Úrslit: Förum í bráðabana

 

Wang Hao (2709) – Rasmus Svane (2625)

Gleðisnautt jafntefli í seinni skákinni í dag.

Úrslit: Förum í bráðabana

Ian Nepomniachtchi (2779) – Nihal Sarin (2688)

Nihal hafði hvítt í seinni skákinni og beitti Catalan. Nepo er með ágætis reynslu að verjast þar eftir einvígin við Carlsen og Ding. Þrátt fyrir að Sarin hafi haft mun þægilegri stöðu með meira rými náði hann aldrei að ógna vörnum Nepo.

Úrslit: Förum í bráðabana

Javokhir Sindarov (2639) – Arjun Erigaisi (2710)

Loks fengum við annan skákmann áfram. Erigaisi hafði hvítt í opna Spánverjanum og náði að komast í hróksendatafl peði yfir þar sem hann hafið betri tækni en Úzbekinn ungi.

Úrslit: Eirigaisi áfram 1,5-0,5

 

Nils Grandelius(2684)Jaime Santos Latasa (2656)

Nils fer áfram hér, hélt tiltölulega auðveldlega jafntefli gegn London-kerfi Santos Latasa. Vel gert hjá Nils!

Úrslit: Grandelius áfram 1,5-0,5

 

Vasyl Ivanchuk (2667) –  Vahap Sanal (2591)

Endurtóku leik tiltölulega snemma, tvær nánast ótefldar skákir og við förum í atskákina.

Úrslit: Förum í bráðabana

 

Gukesh (2744) – Andrey Esipenko (2683)

Skildu jafnir aftur og förum í bráðabana.

Úrslit: Förum í bráðabana

Vidit Santosh Gujrahti (2723) – Etienne Bacrot (2662)

Indverjarnir eru almennt að standa sig vel og Vidit hélt sínu góða gengi áfram. Hann vann flotta skák í gær gegn Bacrot. Í dag hélt Vidit velli með svörtu í flókinni skák þar sem Indverjinn greip tækifærið að þráskáka í lokin en stóð þá líklega mun betur ef ekki til vinnings.

Úrslit: Vidit áfram 1,5-0,5

Ferenc Berkes (2615) – Ruslan Ponomariov (2664)

Ungverjinn fer nokkuð óvænt áfram með öruggri taflmennsku. Hann ruslaði Ponomariov upp í gær og hélt jafntefli í dag í Frakkanum þar sem hann var peði undir en hafði biskupaparið á móti. Hann náði svo að einfalda í jafntefli skiptamun undir þar sem hvítur hafði ekki peð til að reyna að vinna.

Úrslit: Berkes áfram 1,5-0,5

 

Kvennaflokkur

Bella Khotenashvili (2475) – Koneru Humpy (2553)

Sú indverska þurfti nauðsynlega á sigri að halda með svörtu eftir slæmt tap í gær. Hún tjaldaði öllu til og tefldi „Flóðhestinn“ (e.Hippo) sem er djörf uppstilling en getur gefið vel í vissum aðstæðum. Humpy endaði á að klossmáta hina georgísku og tryggði bráðabanann.

Þrjár komust áfram í dag í kvennaflokki í 8-manna úrslit en það voru þær Alexandra Goryachkina (2557) sem lagði Nino Batshiashvili (2474), Tan Zhongyi (2523) sem lagði löndu sína Zhu Jiner (2498) og Polina Shuvalova (2496) sem kom fram hefndum fyrir samlöndu sína Katerynu Lagno og lagði hina serbnesku Teodora Injac (2415) að velli.

Aðrar viðureignir fara í bráðabana í kvennaflokki.

Upptaka af beinni útsendingu dagsins:

- Auglýsing -