Stefán Steingrímur Bergsson (2135) tefldi aftur tvöfalda umferð á Bautzener Türme Open í Þýskalandi. Um er að ræða 9 umferða mót sem keyrt er á 6 dögum með þremur tveggja umferða dögum. 80 keppendur eru skráðir til leiks. Titilhafar á mótinu eru 13 talsins og Stefán er númer 19 í styrkleikaröð.
Stefán hafði 2 vinninga úr þremur fyrstu umferðunum og mætti Þjóðverjanum Pascal Gerhart (1891) í morgunumferðinni. Þar varð Stefán að lúta í dúk en rétti úr kútnum í seinni skákinni gegn öðrum Þjóðverja David Fruth (1960).
Í 6. umferðinni mætir Stefán Felix Schreiber (1884) sem er einmitt líka Þjóðverji. Aftur er tvöfaldur dagur á morgun.

Sigurður Ingason situr einnig að tafli í Búdapest á hinusögufræga First Saturday móti. Sigurður teflir í Round-Robin flokki þar sem tefld er tvöföld umferð. Sigurður er stigalægstur í flokknum og teflir um 250 stig upp fyrir sig í hverri skák.
Hér er skák Sigurðar frá því í gær í 4. umferðinni. Sigurður vann skiptamun en svartur hafði sterkar bætur á svörtum reitum og hafði betur í taktíkinni.
Í 5. umferðinni tapaði Sigurður gegn alþjóðlega meistaranum Dr. Evarth Khan. Sú skák var ekki jafn vel útfærð og skákin við Farago. Stór afleikur í 23. leik kostaði svartan skákina.
Í sjöttu umferðinni er teflt aftur við sama andstæðing og í fyrst umferð en nú með skiptum litum.
















