Kristján Örn Elíasson virðist eiga góða samleið með einhverjum himinskautum á Skákmóti öðlinga (40+) en fjórða umferð fór fram í gær. Kristján vann óvæntan glæsisigur á stgahæsta keppandanum Davíð Kjartanssyni og hefur 3,5 vinning, einn í efsta sæti

Segja má að Kristján Örn sé í dauðafæri að „grípa gæsina“ og vinna mótið. Kristján hefur teflt við þrjá stigahæstu keppendur mótsins og fengið 2,5 vinning af 3 í þeim skákum! Í fimmtu umferð fær hann að öllum líkindum hvítt á Pál G. Jónsson og hefur möguleika á að koma sér í góða stöðu!

Víkjum okkur að umferð gærdagsins. Kristján hafði svart gegn Davíð og tefldi Pirc vörnina eins og hann gerir að staðaldri. „Menn vaða ekki í Pirc-inn“ heyrist stundum gelt úti í hornum!

Davíð missti líklega aðeins þráðinn með 9.e5? snemma tafl. Kristján fékk þægilega stöðu eftir …b4 og …Rd5 leikina sína. Kristján lét svo til skarar skríðar.

15…Rc3! var erfiður viðureignar. Riddarinn er að sjálfsögðu friðhelgur vegna mátsins á b2 í kjölfarið. Biskupapar Kristján tók algjörlega yfir borðið og heilt yfir nokkuð þétt skák af hálfu Kristjáns!

Lenka Ptacnikova fylgir Kristjáni á eftir með 3 vinninga af 4 eftir sigur gegn Þorvarði. Lenka fékk nokkuð þægilegt tafl snemma eftir byrjunina og vann svo peð með taktískri aðgerð.

19…Rxc2! var stílhreinn leikur og svartur vinnur peð þar sem riddarinn á b3 fellur í kjölfarið. Tæknilegi hluti úrvinnslunnar vafðist svo ekki fyrir Lenku sem kláraði með sigri.

Páll G. Jónsson komst einnig í 3 vinninga eftir gefins vinning gegn Haraldi Haraldssyni. Haraldur Baldursson lagði Kjartan Másson og Þórður Arnarson lagði Sigurjón Þór Friðþjófsson að velli í fínni pósa-skák.

Úrslit 4. umferðar:

Lítið um jafntefli og hressleiki í taflmennskunni!

Fimmta umferð fer fram næstkomandi miðvikudag en vikuna þar á eftir er hlé vegna Reykjavíkurskákmótsins!

- Auglýsing -