Landsmótið í skólaskák fer fram í Brekkuskóla á Akureyri 3. og 4. maí nk. Teflt verður í þremur flokkum, 1.-4. bekk, 5.-7. bekk og 8.-10. bekk. Tólf keppendur í hverjum í samræmi við reglugerð mótsins.
Fulltrúar í flokkanna eru valdir á eftirfarandi hátt.
- Reykjavík: Þrjú sæti.
- Kópavogur: Tvö sæti.
- Kraginn: Eitt sæti.
- Suðurnes: Eitt sæti.
- Suðurland: Eitt sæti.
- Norðurland: Eitt sæti.
- Undankeppni á netinu fyrir önnur svæði (Norðurland vestra, Vestfirðir, Austfirðir og Vesturland): Eitt sæti.
- Boðssæti: Tvö sæti.
Dags- og staðsetningar á öllum undankeppnunum liggja nú fyrir
- Reykjavík (22. apríl í TR)
- Kópavogur: (17.-18. apríl í Stúkunni)
- Kraginn: (23. apríl í Miðgarði)
- Suðurnes: (18. apríl i Hljómahöllinni)
- Suðurland (19. apríl kl. 13 á Flúðum)
- Norðurland: (22. apríl á Akureyri)
- Undankeppni á netinu fyrir tiltekin svæði (20. apríl kl. 11 á Chess.com)
Gera má ráð fyrir að mótin verði nánar kynnt jafnt og þétt á næstu dögum.
- Auglýsing -