Stórmeistarinn Helgi Áss Grétarsson er í banastuði á Íslandsmótinu í skák í Mosfellsbæ. Í dag vann hann alþjóðlega meistarann Hilmi Frey Heimisson í sjöttu umferð í lengstu skák umferðarinnar. Helgi er einn efstur með 5½ vinning og hefur hálfs vinnings forskot á Vigni Vatnar Stefánsson sem vann alþjóðlega meistarann Dag Ragnarsson í fjörugri skák. Vignir fylgir Helga Áss eftir eins og skugginn.
Einn vinningur er í næstu menn, sem eru Hilmir Freyr og Hannes Hlífar Stefánsson, sem gerði jafntefli við Héðin Steingrímsson. Aleksandr Domalchuk-Jonasson er fimmti með 3½ vinning eftir sigur á Olgu Prudnykovu. Aðrir eru ólíklegir að blanda sér í baráttuna á þessu stigi mótsins.
Frídagur er á morgun, mánudag. Sjöunda umferð af ellefu fer fram á þriðjudaginn. Þá mætast meðal annars Hannes og Helgi Áss og Hjörvar og Vignir.
Skák Héðins og Hannesar komst aldrei úr startholunum, rétt slógu teighögg. Hannes valdi traust afbrigið og Héðinn fékk engin færi til að setja pressu á svörtu stöðuna.
Vignir vann góðan sigur á Degi, kom honum á óvart í byrjuninni. Vignir vann svo peð í miðtaflinu og virtist sigurinn nokkuð öruggur allan tímann. Tölvurnar voru þó ekki sammála. Dagur átti magnaða leið sem hann missti af!
Eftir 22.Bxf6 lék Dagur 22…De2+ skipti upp á drottningum og vann manninn til baka. Í stöðunni hefði hinsvegar 22…Had8!! leitt til vinningsstöðu á svart! Hugmyndin er að eftir 23.Bxd8 De2+ 24.Kc1 Rd3+ 25.Kb1 kemur einfaldlega 25…Hxf2!
Ótrúleg staða! Hvítur er hrók og manni yfir í stöðunni en er óverjandi mát í þremur leikjum eins og auðvelt er að sannreyna.
Úkraínsku Íslendingarnir mættust í skemmtilegri skák. Aleksandr hafði betur á endanum með skemmilegum sóknaraðgerðum þar sem mörg mátþemu lágu í loftinu.
Guðmundur og Hjörvar skildu jafnir í hrútleiðinlegri skák, samhverfa og mönnunum skóflað fram og til baka, aldrei taphætta hjá neinum.
Bárður náði í sinn annan sigur með því að leggja Lenku að velli. …f6 leikur svarts reyndist líklega banabitinn í endataflinu. Báður kláraði svo dæmið með sama trikki og kom upp í skák hans við Guðmund fyrr á mótinu!
Helgi Áss hélt dampi á toppnum og náði að leggja Hilmi Frey að velli í langri baráttuskák. Staðan var lengst af í jafnvægi, örlítið þægilegri á Helga ef eitthvað var.
Hér ættu leikar að standa jafnir en Hilmir tapaði peði með 33…Hc5? 34.Db3 Df3 35.Dxf7+ og hvítur er peðinu yfir í hróksendatafli. Helgi tefldi endataflið algjörlega eins og herforingi.
Lokahnykkurinn var svo smekklegur
65.Hf5!! svarti hrókurinn er leiklaus og verður að skipta upp á f5 en þá fær hvítur unnið peðsendatafl út af fjarlægja frelsingjanu, glæsilega gert! Ekki ósvpað Ha5 leiknum hjá Praggnanandhaa gegn Abasov á Áskorendamótinu í 7. umferð.
Útsending umferðarinnar
Úrslit
Staðan
Helgi í góðri stöðu en framundan er mjög erfitt prógram hjá honum. Líklegt að toppurinn þéttist eitthvað í næstu umferðum.
Pörun 7. umferðar
.
7. umferð hefst klukkan 15:00 á þriðjudaginn næstkomandi.
- Chess-Results
- Skákskýringar á YouTube (hefjast á milli 16:30-17:00)
- Beint á Chess.com
- Beint á Lichess
- Beint á Chessbase