Svæðismót í skólaskák fyrir Norðurland eystra verður haldið á Akureyri þann 22. apríl nk.
Teflt verður um svæðismeistaratitil í þremur aldursflokkum:
- 1-4. bekk
- 5-7. bekk
- 8-10. bekk
Sigurvegarinn í hverjum flokki öðlast keppnisrétt á landsmótinu í skólaskák sem haldið verður á Akureyri 4-5. maí nk.
Skólar eru hvattir til að senda keppendur í öllum aldursflokkum til mótsins.
Mótið hefst kl. 16.30. Gera má ráð fyrir því að mótið taki allt að tvo tíma, en fjöldi umferða og umhugsunartími fer nokkuð eftir fjölda þátttakenda.
Teflt verður í Rósenborg á Akureyri, neðstu hæð, gengið inn að austanverðu.
Mótsgjald er kr. 1000 fyrir hvern þátttakanda.
Þátttaka tilkynnist til mótsstjóra á netfangið askell@simnet.is fyrir lok dags hinn 21. apríl.
- Auglýsing -
















