Til forsvarsmanna skákfélaga
Stjórn Skáksambands Íslands (SÍ) hélt sinn ellefta stjórnarfund þann 29. maí sl.
Fundargerðir stjórnar- og aðalfunda SÍ má finna á heimasíðu sambandsins:
👉 https://skak.is/skaksamband/fundargerdir/

Aðalfundur SÍ
Aðalfundur Skáksambands Íslands verður haldinn laugardaginn 14. júní 2025 á Blönduósi kl. 13.
Því miður eru endanlegir ársreikningar SÍ ekki tilbúnir enn. Við biðjumst innilegrar afsökunar á því. Þeir eru eins og er í yfirferð hjá skoðunarmönnum. Þeir verða tilbúnir fyrir aðalfundinn. Samkvæmt drögum af ársreikningum er afkoma SÍ á árinu 2024 jákvæð.
Stjórn SÍ er tilbúin að leggja til að fresta afgreiðslu ársreikninga til framhaldsaðalfundar, sem haldinn yrði síðar í sumar, til að koma til móts við 7. grein laga SÍ.

Lagabreytingatillögur
Þrjár lagabreytingatillögur frá laganefnd SÍ liggja fyrir:
https://skak.is/2025/05/15/tillogur-ad-lagabreytingum-fyrir-adalfund/

Framboð til embættis forseta SÍ
Tvö framboð hafa borist: Jóhanna Björg Jóhannsdóttir og Kristján Örn Elíasson.
Nánar um framboðin: https://skak.is/2025/06/05/tveir-frambjodendur-til-embaettis-forseta-skaksambands-islands/
Framboð í aðal- og varastjórn SÍ er nægjanlegt að tilkynna á sjálfum aðalfundinum.

Kjörbréf
Hér að neðan fylgir óútfyllt kjörbréf.
Kjörbréf má senda með tölvupósti á skaksamband@skaksamband.is eða til formanns kjörbréfanefndar, Helga Áss Grétarssonar, helgigretarsson@gmail.com.
Einnig er hægt að leggja fram kjörbréf á aðalfundinum.
Atkvæðisréttur:
Samkvæmt 6. gr. laga SÍ:
,,Við atkvæðagreiðslu á aðalfundi fer hvert félag með eitt atkvæði enda geti það sýnt fram á a.m.k. 10 félagsmenn með lögheimili á Íslandi og virka skákstarfsemi. Eitt atkvæði bætist við hjá félagi fyrir hverja sveit sem það sendir á Íslandsmót skákfélaga það árið. Standi aðildarfélag í gjaldfallinni skuld við sambandið hefur það ekki rétt til að eiga fulltrúa með atkvæðisrétt á aðalfundi. Við atkvæðagreiðslu um kjörbréf í upphafi fundar skal gilda sú regla, að hvert félag fari ekki með fleiri atkvæði en það hafði á aðalfundi árið áður. Hver kjörinn aðalfundarfulltrúi fer aðeins með eitt atkvæði. Ekki er heimilt að greiða atkvæði samkvæmt umboði eða bréfleiðis. Við atkvæðagreiðslur á aðalfundi ræður einfaldur meirihluti atkvæða, nema um þau mál sem sérstaklega eru tilgreind í þessum lögum.“

Kvöldverðarboð
Stjórn SÍ býður fulltrúum á aðalfundi SÍ 2025 til kvöldverðs á Hótel Blönduósi 14. júní kl. 18:30.
Vinsamlegast skráið aðalfundarfulltrúa hér: https://forms.gle/FJhSafmdWuzjnSeGA, eigi síðar en 12. júní kl. 13.

EM taflfélaga 2025
EM taflfélaga verður haldið á Ródos í Grikklandi, 18.-26. október 2025.
👉 Nánar: https://eccc2025.com
Sex skákfélög hafa lýst yfir áhuga á þátttöku í opnum flokki og njóta forgangs um þátttöku verði meiri eftirspurn.
  • Skákdeild Fjölnis
  • Skákdeild KR
  • Taflfélag Reykjavíkur
  • Skákdeild Breiðabliks
  • Skákfélag Akureyrar
  • Dímon
Mögulegt er fyrir önnur félög að sækjast eftir þátttöku, en það er ekki tryggt að það gangi eftir.
Eitt lið hefur skráð til leiks í kvennaflokki.

Icelandic Open
Veislan mikla er framundan!
Icelandic Open: 14.-21. júní, og Blönduós Blitz: 22. júní.
Nánar á skak.is á næstunni.

Með bestu kveðju,
Stjórn Skáksambands Íslands
- Auglýsing -