Áttunda og síðasta mótið í hinni glæsilegu Le Kock mótaröð fór fram síðastliðið miðvikudagskvöld og mótið bæði sterkt og vel mætt eins og endranær! Vignir Vatnar var stigahæstur keppenda og var í góðri stöðu að ná ótrúlegri tvennu, að vinna sterkt skákmót og poolmót í sömu viku!
Vignir byrjaði mótið vel og lagði hvern andstæðinginn að velli á fætur öðrum. Mestu vandræðin framan af voru mögulega í fyrstu umferð þar sem Vignir þurfti virkilega að hafa fyrir sínum sigri gegn Óskari Víkingi sem sýndi og sannaði að hann hefur virkilega hæfileika á skákborðinu!
Auk Óskars vakti framganga Guðrúnar Briem framan af móti verðskuldaða athygli. Guðrún lagði landsliðsmanninn Dag Ragnarsson að velli í 2. umferð og tók svo „Fjölnis-tvennu“ og lagði Oliver Aron Jóhannesson að velli í 3. umferð. Guðrún með fullt hús ásamt Vigni, Adam og Birni Hólm.
Vignir stöðvaði framrás Guðrúnar og í kjölfarið Björn Hólm í 5. umferð sem var með fullt hús eftir fjórar umferðir. Vignir kominn með fullt hús og vinningsforskot eftir fimm umferðir! Sigurganga Vignis hélt áfram og stefndi allt í öruggan sigur hans. Vignir hafði fullt hús eftir sjö umferðir og sigurinn virtist nánast í höfn. Hvítu mennirnir gegn Degi í áttundu umferð en Dagur hafði „pappírað sig“ eftir tapið gegn Guðrún og unnið allar sínar skákir.
Vignir fékk hartnær kolunnið tafl og mögulega missti hann aðeins fókusinn og Dagur náði að snúa erfiðu tafli sér í vil og jafna Vigni að vinningum. Báðir unnu þeir í lokaumferðinni en Dagur hafði rétt svo betur á oddastigum. Hilmir stal svo þriðja sætinu á oddastigum af Sigurbirni sem hafði átt glimrandi mót en varð að sætta sig við fjórða sætið.
Tómas Tandri tefldi ekki bara í mótinu, hann tók líka upp stórskemmtileg myndbrot sem hægt er að nálgast í myndbandi á Facebook-síðunni Íslenskir Skákmenn.
Lokastaðan – efstu menn:
- IM Dagur Ragnarsson – 8 vinningar
60,000kr + Gjafakarfa frá Innnes

- GM Vignir V. Stefánsson – 8 vinningar
40,000kr + Gjafakarfa frá Innnes

- IM Hilmir Freyr Heimisson – 6,5 vinningar
20,000kr + Gjafakarfa frá Innnes
Skemmtilegur árangur hjá Hilmi sem kemst í topp 12 og lokamótið þrátt fyrir að hafa bara teflt á tveimur síðustu mótunum!
U2000 Verðlaun
Það var Óskar Víkingur Davíðsson sem stal senuni og tók U2000 verðlaunin að þessu sinni en hann hækkaði um 49 elóstig og rétt hangir undir 2000 stigum enn um sinn!
U2000: 10,000kr gjafabréf á Le kock og Deig + Gjafakarfa frá Innnes
Efsta konan
það var Indlandsfarinn Hallgerður Helga sem tók kvennaverðlaunin eftir harða baráttu. 5,5 vinningur Höllu var hálfum vinningi ofar en landsliðskonurnar Guðrún og Lenka. Guðrún má samt vel við una en hún hækkaði allverulega á hraðskákstigum!

Efsta konan: 10,000kr gjafabréf á Le kock og Deig + Gjafakarfa frá Innnes
Efsti stigalausi
Það var Þorbjörn Arnalds Guðmundsson sem varð efstur stigalausra að þessu sinni.

Efsti stigalausi: 10,000kr gjafabréf á Le kock og Deig + Gjafakarfa frá Innnes
Stig í mótaröðinni eftir áttunda mót
Eins og sjá má hafa tólf skákmenn tryggt sig áfram á Lokamótið og ljóst er að bæði verður hægt barist og mikið um dýrðir á lokamótinu í janúar! Hægt er að sjá lokastöðuna á Google Sheets
Fyrsta mótið fór fram í maí þar sem stórmeistarinn Hannes Hlífar Stefánsson varð hlutskarpastur. Mót númer tvö vann Vignir Vatnar sjálfur eins og þriðja mótið. Róbert Lagerman tók svo fjórða mótið og Örn Leó það fimmta. Það var svo Vignir Vatnar sem vann sjötta mótið. Það var svo stórmeistarinn Helgi Áss vann sigur á sjöunda mótinu.
12 efstu keppendur á samanlögðum stigum (6/8 bestu mótum gilda) tefla svo til úrslita í beinni útsendingu, þar verða verðlaunin eftirfarandi:
- X TBA
- X TBA
- X TBA
Áskrifendur VignirVatnar.is fá frítt í mótið!
Takk fyrir, Le Kock og VignirVatnar.is.















