Þriðja umferð Íslandsmótsins í skák var tefldi í dag í Miðgarði í Garðabæ. Þeir Hilmir Freyr Heimisson og Hannes Hlífar Stefánsson halda áfram góðu gengi sínu og hafa áfram fullt hús. Eitthvað hikst er á Íslandsmeistaranum Vigni Vatnari Stefánssyni sem varð að sætta sig við sitt annað jafntefli í röð.

Rennum yfir gang mála í þessari umferð:

IM Hilmir Freyr  (2) – IM Björn Þ. (1)

Hér voru á ferðinni undur og stórmerki. Hilmir opnaði skákina með kóngspeðinu og tefldi Spánverjann. Mögulega hefur Hilmir ætlað að taka Björn í próf í Cozio-afbrigðinu svokallaða sem Björn hefur mikið notað en afbrigði þar sem vel undirbúinn andstæðingur gæti komið höggi á hann. Björn var hinsvegar sá sem kom á óvart og tefldi Marshall-árásina! Í 653 skákum með svart hefur Björn aðeins einu sinni beitt þessu afbrigði áður, gegn Dmitry Frolyanov á Kaupthing Open í Luxemburg árið 2008…takk fyrir!

Margir kannast við þessa bók sem var hálfgerð biblía á tíunda áratugnum, Marshall Attack eftir Nunn!

Eftir 15.He4 þarf svartur að kunna sitt fag.

15…g5!? er skemmtilegur leikur sem mælt var með í bók Nunn og man greinarhöfundur eftir hvað þetta var sniðugt á sínum tíma. Gerður leikur stoppar Hh4 hugmynd hvíts og 16.Bxg5? er svarað með 16…Df5! tvöföld árás! Björn lék g-peðinu en hér voru báðir að tefla hratt. Hilmir getur ekki mögulega hafa undirbúið þessa byrjun en væntanlega að spila ákveðið „bluff“ og reyna að muna línuna á hvítt hér en Björn líklega undirbúið sig og verið klár hér en var þó fyrri til að eyða smá tíma. Hilmir byrjaði að hugsa eftir skemmtilega leik Björns, 19…Rf4!?

Björn átti þráskák en vildi meira!

Í kjölfarið átti Björn gangandi þráskák

Hér er 23..Bf5+ 24.Ke2 Bg4+ o.s.frv. gangandi þráskák…en Björn vildi meira og lék 23…c5? Hugmyndin í sjálfu sér ekki galin, Björn væntanlega séð að 24.dxc5 Bxf5+ 25.Ke2 Bxc5 er betra á svart. Hvítur á hinsvegar 25.Re4! og hvítur fær mun betra endatafl peði yfir.

Björn tefldi vörnin aktíft og náði að komast í endatafl með jafnt á liði. Hróksendataflið með tvö peð gegn tveimur hlýtur að vera jafntefli en hvítur á betri sénsa með samstæð frípeð. Hér var Björn sleginn einhverskonar skákblindu.

42…He6?? er þráðbeinn tapleikur, peðsendataflið tapast. Peð með tvær reitaraðir á milli verða að komast yfir á yfirráðasvæði andstæðings síns bæði, annars nær kóngurinn að taka annað peðið og hanga inni í ferningi hins peðsins.

WGM Lenka (0) – GM Hannes (2)

Lenka fór í sína venjulegu uppstillingu með Rf3-e3-c4-Rc3 en Hannes jafnaði taflið auðveldlega og tók snemma yfirhöndina. Hvítur virtist ekki finna plan í stöðunni og Hannes gat byrjað að þenja sig á kóngsvæng óáreittur.

Hannes náði miklum stöðulegum yfirburðum á kóngsvæng og sérstaklega á hvítu reitunum. Hvíta vörnin gríðarlega erfið en einhvern veginn hélt Lenka taflinu alltaf á floti og Hannes þurfti að finna leiðir til að klára. Á ögurstundu spilaði Hannes út trompi sínu of snemma..

55…f2? er of snemma á ferðinni. 55…Hxh2 heldur öllum trompum og svartur vinnur fljótlega mann. Eftir gerðan leik kom 56.Ha1 Bd3 57.Bxf2 og hvítur vinnur manninn til baka. Hróksendataflið virðist jafntefli með bestu taflmennsku en auðvitað praktískir sénsar á svart.

Hannes náði að nýta þessa praktísku sénsa, þrekið mögulega farið eftir langa og erfiða vörn hjá hvítum og tímahrak mikið í ofanálag. Hannes náði á endanum sigrinum en hann hefði átt að vera auðveldari miðað við efni og áhöld snemma tafls.

CM Björn Hólm (0) – GM Vignir (1½)

Vignir beitti „hröðuðum-drottningarindverja“ gegn Birni Hólm og gaf strax til kynna að hann vildi flækja taflið og tefla til vinnings. Hvíta staðan betri í miðtaflinu en dýnamískt ójafnvægi í stöðunni og Vignir hafði náð að byggja upp fínasta tímaforskot.

Það keyrði þó um þverbak í 14. leik þegar Björn kom sér í mjög erfiða aðstöðu og fór úr 38 mínútum niður í 4 mínútur. Flæðið var þá þegar farið að snúast svörtum í vil og erfitt verkefni framundan að verja stöðuna með mínútu á klukkunni. Ótrúlegt en satt þá héldu varnir Björns. Staðan virtist á köflum vonlítil.

Vignir fann ekki leiðir í gegnum varnir hvíts

Hér t.d. virðist svartur hafa alla stöðuna, tangarhald á svörtu reitunum og virðist geta beðið átekta og brotist í gegn. Björn tefldi vörnina hinsvegar mjög vel, náði kaupum á drottningum og Vignir fann ekki gegnumbrotið. Betra í blöðunum en dugði ekki til og endataflið í lokin steindautt.

FM Bárður Örn (1) Guðmundur (1½)

Upp kom drottningarbragð, Guðmundur beitti leiknum 4…h6 sem fer úr alfaraleiðum og Bárður missti aðeins frumkvæðið yfir til svarts snemma tafls. Guðmundur náði að nýta sér þetta og vann peð nokkuð snemma í miðtaflinu. Staðan var hinsvegar nokkuð opin og erfitt að nýta umframpeðið.

Gummi fann nokkuð beitta leið til að setja pressu á hvítu stöðuna og nýta sér tímahrakið hjá Bárði.

Hér lék Bárður 32.Dd4? og taflið er tapað í nokkrum leikjum eftir 32…gxh2+ tölvan gefur ótrúlega björgun, 32.Hxh6!! og hvítur á þráskák í öllum varíöntum, magnað alveg hreint!

IM Dagur (1) – FM Örn Leó (0)

Skák Dags gegn Erni Leó hófst með drottningarpeðinu. Örn Leó stillti upp í Bogo-indverska vörn og fékk mjög trausta stöðu. Miðtaflið einkenndist af miklum tilfæringum enda engin uppskipti á peðum. Dagur virtist vera að ná yfirhöndinni þegar hann náði svartreitabiskup sínum á langa og opna skálínu a1-h8.

Örn fann mótspil tímanlega og það mótspil hefði mögulega getað gefið ansi vel!

Hér átti Örn sleggju, 33…Bxh3!! og hvíta staðan hrynur eftir 34.gxh3 g4 og 35.Bg2 er svarað með 35…f3 þess í stað kom 33…He7 og Dagur slapp með skrekkinn.

Í hönd fór endatafl þar sem Dagur hafði umframpeð en mislitir biskupar gefa alltaf mikla jafnteflissénsa og eftir að Örn náði að skipta upp á hrókum var ekki að spyrja að leikslokum og jafnteflið öruggt.

Staðan eftir 3 umferðir

GM Hannes Hlífar Stefánsson – 3 vinningar
IM Hilmir Freyr Heimisson – 3 vinningar
GM Guðmundur Kjartansson – 2,5 vinningar
GM Vignir Vatnar Stefánsson – 2 vinningar
IM Dagur Ragnarsson – 1,5 vinningar
IM Björn Þorfinnsson – 1 vinningur
FM Bárður Örn Birkisson – 1 vinningur
FM Örn Leó Jóhannsson – 0,5 vinningur
CM Björn Hólm Birkisson – 0,5 vinningur
WGM Lenka Ptácníková – 0 vinningar

4. umferð tefld þriðjudaginn 4. maí kl. 15:00

FM Örn Leó Jóhannsson – IM Björn Þorfinnsson
GM Hannes Hlífar Stefánsson – IM Hilmir Freyr Heimisson
GM Guðmundur Kjartansson – WGM Lenka Ptácníková
GM Vignir Vatnar Stefánsson – FM Bárður Örn Birkisson
IM Dagur Ragnarsson – CM Björn Hólm Birkisson

Framundan topbaráttuskák milli Hannesar og Hilmis á morgun! Skákáhugamenn velkomnir í Miðgarð umferðin hefst 15:00 útsendingar skáka hafa 15 mínútna seinkun á Lichess.

Samantekt frá þriðja keppnisdegi í umsjón FM Ingvars Þórs: (væntanleg!)

Myndaalbúm á Flickr (notið örvar til að fletta myndum!)

Íslandsmótið í skák 2026

Um mótið:

Alls taka tíu keppendur þátt, þar af þrír stórmeistarar. Stórmeistarinn Vignir Vatnar Stefánsson telst líklegastur til sigurs, en hinir tveir stórmeistararnir, Hannes Hlífar Stefánsson (þrettánfaldur Íslandsmeistari) og Guðmundur Kjartansson (þrefaldur Íslandsmeistari), eru taldir veita honum harða keppni. Athyglisvert er að Vignir mætir þeim báðum í síðustu tveimur umferðunum. Þá gætu aðrir keppendur einnig komið á óvart og blandað sér í toppbaráttuna.

Einnig vekur athygli að tvíburabræðurnir Bárður Örn og Björn Hólm Birkisson tefla báðir í mótinu – slíkt hefur ekki gerst áður á Íslandsmótinu, þó bræður og jafnvel feðgar og hjón hafi áður teflt saman.

Tefldar verða níu umferðir, þar sem teflt er daglega kl. 15, nema í lokaumferðinni 9. maí sem hefst kl. 11. Komi til aukakeppni verður hún tefld strax að lokinni lokaumferð.

 

- Auglýsing -