Þriðja umferð var tefld í dag á TePe Sigeman-mótinu í Malmö í Svíþjóð. Margir biðu spenntir eftir viðureign Magnus Carlsen og eins af krónprinsum skákarinnar Nodirbek Abdusattorov. Skák þeirra lauk með jafntefli en Erdogmus og Erigaisi náðu sér í sigri og þéttu toppinn þar sem fimm skákmenn hafa 2 vinninga eftir 3 umferðir.
Magnus hafði hvítt gegn Abdusattorov en komst lítið áleiðis. Sjónrænt virkaði svarta staðan örlítið hættulegri með rýmið á drottningarvæng en tölvurnar örlítið hliðhollari hvítu stöðunni þó alltaf væri stutt í núllið. Þess var einfaldlega stál í stál og jafntefli.
Erdogmus bættist við toppinn, lagði Jiner að velli en hún virðist ætla að verða skotspónn stigahærri manna eins og Grandelius. Músin er orðin ótrúlega sterk og flæðið í skákinni og mörgum skákum hans er ótrúlega áreynslulaust og nánast eins og hér hafi þrautreyndur 2700 stiga maður verið að tefla við FIDE meistara.
Erigaisi lagði Grandelius í sveiflukenndri skák og þeir Woodward og Forrest skildu jafnir.
Carlsen, Nodirbek, Erdogmus, Erigaisi og Woodward því efstir með 2 vinning að loknum þremur umferðum, taflið heldur áfram á morgun en skákir byrja 13:00 að íslenskum tíma…fín upphitun fyrir Íslandsmóts-skákir sem fyrr!
Um mótið:
Tepe Sigeman er sterkt mót sem haldið er í Svíþjóð og hefur vakið athygli fyrir skemmtilegan keppendalista í gegnum tíðina. Sérstaka athygli vakti þátttaka Magnus Carlsen í ár. Óstaðfestar heimildir herma að Carlsen hafi tekið þátt þar sem golfvellir í nánd við mótsstað eru með besta móti!
Umhugsunartíminn er 90 mínútur fyrir fyrstu 40 leikina, síðan 30 mínútur til loka skákar, með 30 sekúndna viðbót frá fyrsta leik, og samkvæmt svokölluðum Malmö-reglum eru jafnteflistilboð ekki leyfð fyrir 40. leik.
Keppendahópurinn er glæsilegur: Magnus Carlsen, Nodirbek Abdusattorov, Arjun Erigaisi, Jorden van Foreest, Yağız Kaan Erdoğmuş, Nils Grandelius, Andy Woodward og Jiner Zhu. Þarna mætast reyndir stórmeistarar og nokkrir af áhugaverðustu ungu skákmönnum heims, flestir frumlegir og hvassir skákmenn.
















