Mánudaginn 23. mars verður 9 umferða hraðskákmót með 7 mínútna umhugsunartíma. Fyrirmyndin er að sjálfsögðu hin vinsælu hraðskákmót KR sem haldin hafa verið um langt árabil.
- Tengill: https://www.chess.com/live#t=1162355
Félag Íslendinga á Chess.com, Team Iceland, mun standa fyrir fjölmörgum skákviðburðum á netinu næstu vikurnar. Leitast verður við að spegla vinsæla skákviðburði og fasta liði í mótaáætlun skákhreyfingarinnar.
Mótin eru að sjálfsögðu opin öllum Íslendingum og það kostar ekkert að taka þátt!
HVAÐ ÞARF AÐ GERA TIL AÐ TAKA ÞÁTT?
Nýliðar þurfa að ganga í hópinn https://www.chess.com/club/team-iceland á Chess.com áður en keppnin hefst.
Tengill á mótið sjálft er hér að ofan, en hann má einnig finna í “Tournaments” flipanum á Chess.com/live áður en mótið hefst.
DAGSKRÁIN VIKUNA 23. – 29. MARS
MÁNUDAGINN 23. MARS KL. 19:30
KR hraðskákmót. 9. umferðir með 7 mínútna umhugsunartíma
- Tengill: https://www.chess.com/live#t=1162355
ÞRIÐJUDAGINN 24. MARS KL. 19:30
Þriðjudagsmót (TR). 15+5 4 umferðir
- Tengill: https://www.chess.com/live#t=1162360
MIÐVIKUDAGINN 25. MARS KL. 19:30
Hraðskákmót 3+2. Arena mót í 2 klukkutíma
- Tengill: https://www.chess.com/live#r=171474
FIMMTUDAGINN 26. MARS KL. 19:30
Hraðskákmót 9 umferðir 5+2. Teflt í tveimur flokkum, +-2000 stig.
- Yfir 2000: https://www.chess.com/live#t=1162362
- Undir 2000: https://www.chess.com/live#t=1162367












