Ísland hefur þátttöku á Ólympíumótinu í netskák kl. 14 í dag en þá hefst riðill Íslands í 2. deild Ólympíuskákmótins. Teflt er föstudag-sunnudag, kl. 14-17, þrjár umferðir hvern dag.
Í hverri umferð tefla sex skákmenn frá hverri þjóð (2 karlar og 2 konur, strákur og stúlka 20 ára og yngri). Í dag verða Guðmundur Kjartansson, Helgi Áss Grétarsson, Lenka Ptácníková, Jóhanna Björg Jóhannsdóttir, Vignir Vatnar Stefánsson og Batel Goitom Haile í aðalhlutverkum. Liðsstjóri íslenska liðsins er Ingvar Þór Jóhannesson.
Andstæðingar dagsins verða Carlsen-lausir Norðmenn en heimsmeistarinn er upptekinn við taflmennsku í eigin mótasyrpu á Chess24, Síle og Svíþjóð. Alls tefla 10 lið í riðli Íslands og ávinna þrjú efstu liðin sér keppnisrétt í fyrstu deild. Upplýsingar um andstæðinga Íslands um helgina má finna hér.
Björn Ívar Karlsson verður með beinar útsendingar alla helgina þar sem hann fer yfir skákirnar jafnóðum og jafnvel grípur keppendur og áhorfendur í viðtöl. Útsending dagsins hefst rétt fyrir kl. 14 í dag.
Teflt er í skákhöll TR, Faxafeni 12. Áhorfendur eru velkomnir á skákstað en minnt er á reglur um sóttvarnir og tveggja metra regluna.
| Flokkur | Aðalmenn | Varamenn |
| Karl 1 | Jóhann Hjartarson, stórmeistari | Bragi Þorfinnsson, stórmeistari |
| Karl 2 | Guðmundur Kjartansson, alþjóðlegur meistari | Helgi Áss Grétarsson, stórmeistari |
| Kona 1 | Lenka Ptácníková, stórmeistari kvenna | Jóhanna Björg Jóhannsdóttir |
| Kona 2 | Hallgerður Helga Þorsteinsd., FIDE-meistari kvenna | Lisseth Acevedo Mendez, alþjóðlegur meistari kvenna |
| Strákur | Vignir Vatnar Stefánsson, FIDE-meistari | Birkir Ísak Jóhannsson |
| Stúlka | Batel Goitom Haile | Iðunn Helgadóttir |
















