Fyrri hluti Íslandsmóts skákfélaga 2021-22 fer fram dagana 30. september – 3. október nk. Fyrri hlutinn fer fram í Egilshöllinni, höfuðstöðvum Umf. Fjölnis.
Skráningu er lokið í allar deildir nema þá fjórðu. Búið er að draga um töfluröð og má finna á hana á Chess-Results.
Skráningarfrestur í 4. deild er 17. september.
Búið er að loka fyrir félagaskipti nema fyrir þá sem eru utan félaga og án skákstiga. Þeir geta skráð til leiks.
- Félagagrunnur skákmanna (félagaskiptaform efst til hægri)
- Upplýsingar um nýjustu félagaskipti
Fyrsta umferð (eingöngu í úrvalsdeild) mun hefjast kl. 19.30 fimmtudaginn 30. september.
Aðrar deildir munu hefjast föstudaginn 1. október kl. 19:30. Síðan verður teflt laugardaginn 2. október kl. 11.00 og kl. 17.00 sama dag. Síðasta umferðin í fyrri hlutanum hefst kl. 11.00 sunnudaginn 3. október.
Keppnin fer fram svo framarlega sem 100 manns eða fleiri megi vera í sama rými.
Umhugsunartími er 90 mín. á skákina + 30 sek. viðbótartími bætist við eftir hvern leik.
Þátttökugjöld 2021-22 verða sem hér segir:
- Úrvalsdeild 120.000 kr.
- 1. deild kr. 80.000 kr.
- 2. deild kr. 40.000 kr.
- 3. deild kr. 30.000 kr.
- 4. deild kr. 20.000 kr.
Til frádráttar verða 50% þátttökugjalda fyrir lið í 3.-4. deild á keppnistímabilinu 2019-21 þar sem síðari hlutanum þar var aflýst.
Greiðslur fyrir ferðakostnað eru 30.000 kr. í úrvalsdeild (miðað að menn tefli allar skákirnar) en kr. 15.000 í 1. deild. Ekki er greiddur ferðakostnaður í öðrum deildum.
Skráning fer fram á Skák.is (guli kassinn).
- Skráningarform
- Þegar skráðar sveitir
- Chess-Results
- Skáklög Skáksambands Íslands (12. grein)
- Reglugerð um Íslandsmót skákfélaga (verður uppfærð fyrir mót)
















