Öllum skákum 7. umferðar Norway Chess lauk með hreinum úrslitum í hefðbundinni skák. Richard Rapport (2760) vann Sergey Karjakin (2758), Magnus Carlsen lagði landa sinn, Aryan Tari (2642) að velli og Alireza Firouzja (2754) hafði sigur á áskorandanum Ian Nepomniachtchi (2792).
Kerfið er þannig að tefld er ein kappskák. Verði jafnt verður tefld bránabanaskák. 3 stig eru gefin fyrir vinning í aðalskákinni, 1,5 stig fyrir sigur eftir bráðabana, 1 stig eftir tap í bráðabana.
Rapport hefur 15,5 stig, Carlsen er annar með 12 stig. Þeir mætast í áttundu umferð sem fram fer í dag.
Staðan

- Heimasíða mótsins
- Beinar útsendingar (hefjast kl. 15)
- Auglýsing -

















