Hasselbacken mótið í Svíþjóð fer fram um helgina. Keppt er á opnu móti og svo Lilla Hasselbacken, Íslendingar eiga alls 20 keppendur á mótinu.
Vignir Vatnar Stefánsson er að standa sig best Íslendingana á opna mótinu eins og við var að búast. Vignir fékk 3,5 af 4 úr átskákunum á föstudeginum og 1,5 af 2 úr kappskákunum í dag. Hann er jafn öðrum í þriðja sæti með 5 vinninga af 7. Næstir koma þeir Stephan Briem, Birkir Ísak Jóhannsson og Arnar Milutin Heiðarsson með 4 vinninga. Arnar vann báðar kappskákir sínar í dag.
Guðrún Fanney Briem hefur 4,5 vinning af 6 í Lilla Hasselbacken. Næstur er Markús Orri Jóhannsson með 4 vinning og Birkir Hallmundarson hefur 3,5 vinning.
Á morgun eru síðustu tvær kappskákirnar tefldar. Vignir mætir FIDE meistaranum Kaan Küçüksarı (2331) í sjöundu umferðinni.

















