
Lengsta skák í sögu heimsmeistaraeinvíganna leit dagsins ljós í gær er Magnús Carlsen vann sjöttu einvígisskákina í Dúbaí eftir 136 leiki og komst yfir, 3½:2½. Viðureignin stóð í sjö klukkutíma og 45 mínútur og var gott dæmi um leiktækni heimsmeistarans.
Skákin í gær var afar spennandi og frábær skemmtun en hlýtur að hafa reynt á þolrif skákmeistaranna. Nepo átti ekki í miklum erfiðleikum með að jafna taflið en sýndi lélega dómgreind er hann skipti á hrókum fyrir drottningu. Hann gat samt haldið jafnvægi en var reikull í ráði og Magnús gat þvingað fram vinningsstöðu. En klukkan rak á eftir og hann lét fyrra tækifærið sér úr greipum ganga og Nepo missti góð færi. Frábær barátta:
HM-einvígi í Dúbaí; 6. skák:
Magnús Carlsen – Jan Nepomniacthchi
Katalónsk byrjun
1. d4 Rf6 2. Rf3 d5 3. g3 e6 4. Bg2 Be7 5. 0-0 0-0 6. b3 c5 7. dxc5 Bxc5 8. c4 dxc4 9. Dc2 De7 10. Rbd2 Rc6
Nepo sýnir peðsfórnum Magnúsar yfirleitt lítinn áhuga og sennilega er þetta traustara en 10…. cxb3 11. Rxb3 Bd6 sem þó kom til greina.
11. Rxc4 b5 12. Rce5 Rb4 13. Db2 Bb7 14. a3 Rc6 15. Rd3 Bb6 16. Bg5 Hfd8 17. Bxf6 gxf6 18. Hac1 Rd4 19. Rxd4 Bxd4 20. Da2 Bxg2 21. Kxg2 Db7+ 22. Kg1 De4 23. Dc2 a5 24. Hfd1 Kg7 25. Hd2
Hugmyndin virtist vera að leika – Dd1. En nú kom óvæntur leikur.
25…. Hac8?
Það var engin þörf á því að bjóða upp á þessi býtti.
26. Dxc8 Hxc8 27. Hxc8 Dd5 28. b4 a4 29. e3 Be5 30. h4 h5 31. Kh2 Bb2 32. Hc5 Dd6 33. Hd1?
33. Hcc2 vinnur, t.d. 33…. Bxa3 34. Rf4 Dxb4 35. Hd7! o.s.frv.
33…. Bxa3 34. Hxb5 Dd7 35. Hc5 e5? 36. Hc2 Dd5 37. Hdd2 Db3 38. Ha2 e4 39. Rc5 Dxb4 40. Rxe4
Hann gat unnið með 40. Hdc2! Hótunin er 41. Rxa4! Dxa4 42. Hc3 og þegar biskupinn fellur vinna hrókarnir auðveldlega á veikri peðstöðu svarts.
40…. Db3 41. Hac2 Bf8 42. Rc5 Db5 43. Rd3 a3 44. Rf4 Da5 45. Ha2 Bb4 46. Hd3 Kh6 47. Hd1 Da4 48. Hda1 Bd6 49. Kg1 Db3 50. Re2 Dd3 51. Rd4 Kh7 52. Kh2 De4 53. Hxa3 Dxh4+ 54. Kg1 De4 55. Ha4 Be5 56. Re2 Dc2 57. H1a2 Db3 58. Kg2 Dd5+ 59. f3 Dd1 60. f4 Bc7 61. Kf2 Bb6 62. Ha1 Db3 63. He4 Kg7 64. He8 f5 65. Haa8 Db4 66. Hac8 Ba5 67. Hc1 Bb6 68. He5 Db3 69. He8 Dd5 70. Hcc8 Dh1 71. Hc1 Dd5 72. Hb1 Ba7 73. He7 Bc5 74. He5 Dd3 75. Hb7 Dc2 76. Hb5 Ba7 77. Ha5 Bb6 78. Hab5 Ba7 79. Hxf5 Dd3
80. Hxf7+!
Knýr fram stöðu sem svartur nær ekki að verja – með drottningu gegn hrók, riddara og tveim peðum.
80…. Kxf7 81. Hb7+ Kg6 82. Hxa7 Dd5 83. Ha6+ Kh7 84. Ha1 Kg6 85. Rd4 Db7 86. Ha2 Dh1 87. Ha6+ Kf7 88. Rf3 Db1 89. Hd6 Kg7 90. Hd5 Da2+ 91. Hd2 Db1 92. He2 Db6 93. Hc2 Db1 94. Rd4 Dh1 95. Hc7+ Kf6 96. Hc6+ Kf7 97. Rf3 Db1 98. Rg5+ Kg7 99. Re6+ Kf7 100. Rd4 Dh1 101. Hc7+ Kf6 102. Rf3 Db1 103. Hd7 Db2+ 104. Hd2 Db1 105. Rg1 Db4 106. Hd1 Db3 107. Hd6+ Kg7 108. Hd4 Db2+ 109. Re2 Db1 110. e4 Dh1 111. Hd7+ Kg8 112. Hd4 Dh2+ 113. Ke3 h4 114. gxh4 Dh3+ 115. Kd2 Dxh4 116. Hd3 Kf8 117. Hf3 Dd8+ 118. Ke3 Da5 119. Kf2 Da7+ 120. He3 Dd7 121. Rg3 Dd2+ 122. Kf3 Dd1+ 123. He2 Db3+ 124. Kg2 Db7 125. Hd2 Db3 126. Hd5 Ke7 127. He5+ Kf7 128. Hf5+ Ke8 129. e5 Da2+ 130. Kh3 De6 131. Kh4 Dh6+ 132. Rh5 Dh7
133. e6!
Með hugmyndinni 133…. Dxf5 34. Rg7+ o.s.frv.
133…. Dg6 134. Hf7 Kd8 135. f5 Dg1 136. Rg7
– og svartur gafst upp.
Helgi Ólafsson helol@simnet.is
Skákþættir Morgunblaðsins birtast á Skák.is viku síðar en í blaðinu sjálfu. Þessi skákþáttur birtist 4. desember 2021.














