Ný hárgreiðsla Nepo og Magnús við upphaf níundu skákarinnar. Athygli vakti að Nepo hafði látið klippa sig. — AFP

Jafntefli varð í litlausri tíundu einvígisskák Magnúsar Carlsens og Jans Nepomnniactchis í Dúbaí í gær og virðist nú einungis formsatriði fyrir Norðmanninn að vinna einvígið því staðan er nú 6½:3½ og hann þarf einn vinning í þeim fjórum skákum sem eftir eru til að verja heimsmeistaratitilinn. Ellefta skákin verður tefld á morgun.

Þessi staða í einvíginu kemur nokkuð óvart því að byrjunin lofaði góðu fyrir Nepo. Byrjanir hans voru markvissar og Magnús lenti í talsverðum erfiðleikum í fimmtu skákinni. En sigur hans í lengstu skák sem tefld verið í heimsmeistaraeinvígi sl. föstudag, 136 leikja maraþonviðureign, hefur greinilega slegið Nepo út af laginu. Leita þarf vel og vandlega í annálum til að finna jafn slaka leiki í heimsmeistaraeinvígi og þá sem urðu Nepo síðan að falli í áttundu og níundu skákinni. Maður hefði haldið að sálfræðilegur undirbúningur Nepos fyrir einvígið hefði átt að gera hann móttækilegan fyrir einhverju andstreymi en greinilegt er að höggið í sjöttu „lotu“ var of þungt. Eftir litlaust jafntefli í sjöundu skákinni virtist allt í himnalagi í þessari stöðu:

HM-einvígi í Dúbaí 2021; 8. skák:

Magnús Carlsen – Jan Nepomniachtchi

Svartur heldur jafnvægi með 21. … Kg8 t.d. 22. De7 Be6 o.s.frv. Annar möguleiki er 21. … Dd6 22. Db3 b5 23. Bxf7 Df4 24. Da3+ Dd6 með flókinni stöðu. Nepo átti nægan tíma en lék ótrúlegum afleik.

21. … b5?? 22. Da3+ Kg8 23. Dxa7 Dd8

Skárra var 23. … Bxh3 24. Dxf7+! Dxf7 25. He8 Kh7 26. Bxf7+ og hvítur á sælu peði meira.

24. Bb3

– og þessi staða er unnin á hvítt. Magnús vann í 46 leikjum.

Nepo mætti svo til leiks í níundu skák með nýja hárgreiðslu. Hárhnúturinn horfinn og dómgreindin kannski líka:

HM-einvígi Dúbaí 2021; 9. skák:

Jan Nepomniachtchi – Magnús Carlsen

Nepo vissi að hann þyrfti að vinna þessa skák. En staðan á borðinu er jöfn og það virtist hann ekki geta sætt sig við. Best var 27. f3 Rh6 28. Be4 Hxc4 29. Hec1 en svartur leikur betur með 28. … Rf5. En nú kom hrikalegur afleikur …

27. c5??

Það var greinilegt á svipbrigðum heimsmeistarans að leikurinn kom honum í opna skjöldu. Eftir dágóða stund lék hann …

27. … c6!

Biskupinn lokast úti og Nepo gafst upp eftir 39 leiki. Það verður ekki frá Norðmanninum tekið að hann nýtti færi sín vel í vinningsskákunum þremur.

Situr lítið við skákborðið

Það háttalag Nepos að sitja sem minnst við borðið þegar skákirnar eru tefldar en dvelja í hvíldarherbergi keppenda, hugsa sinn gang þar en stíga svo fram til að leika, hefur vakið athygli. Magnús hefur ekki gert neinar athugasemdir við þetta háttalag sem rifjar upp hatramma deilu sem spratt upp í lokaeinvígi áskorendakeppninnar 1977/78 í Belgrad. Viktor Kortsnoj hafði náð miklu forskoti gegn Boris Spasskí, sem kaus upp frá því að sitja sem lengst í hvíldarherbergi sínu en kom fram til að leika. Kortsnoj tók þessu afar illa og upp úr sauð. Skyndilega vann Spasskí fjórar skákir í röð en viðskiptum þeirra lauk með því að prúðmennið Spasskí steytti hnefann framan í Kortsnoj þegar síðasta skákin var tefld. En Kortsnoj vann og tefldi um heimsmeistaratitilinn við Karpov sumarið og haustið 1978.

Helgi Ólafsson helol@simnet.is

Skákþættir Morgunblaðsins birtast á Skák.is viku síðar en í blaðinu sjálfu. Þessi skákþáttur birtist 9. desember 2021. 

- Auglýsing -