Hannes að tafli í Prag 2020. Mynd: Heimasíða mótsins.

Stórmeistarinn Hannes Hlífar Stefánsson (2518) vann laglegan sigur á þýska alþjóðlega meistaranum Franz Braeuer (2435) í 3. umferð Marienbad Open í Tékklandi í gær.  Hannes fórnaði manni í 16. leik og mátaði andstæðinginn níu leikjum síðar.

Hannes hefur 2 vinninga og er í 1.-4. sæti. Tvær umferðir fara fram í dag. Sú fyrri hófst kl. 8 og sú síðari hefst kl. 15. Andstæðingar dagsins eru tékkneski FIDE-meistarinn Jakub Kusa (2297) og Þýski skákmeistarinn Nikolas Wachinger (2360).

Tíu skákmenn og þar af þrír stórmeistarar tefla í lokuðum flokki Hannesar. Hannes er næststigahæstur keppenda. Meðalstigin er 2420 skákstig.

- Auglýsing -