Vignir Vatnar Stefánsson er kominn í hörkustuð í Serbíu og vann í dag sína þriðju skák í röð. Að þessu sinni laut hinn pólski FM Dawid Czerw (2398) í dúk.

Vignir beitti Benoni vörn og hafði betur í sviptingum í miðtafli þar sem hann komst í vænlega stöðu þar sem peðameirihluti hans á drottningarvæng var kominn á fleygiferð.

Flottur sigur sem augljóslega kemur Vigni í dauðafæri. Árangur hans nú er 2624

Hilmir Freyr Heimisson tapaði sinni skák gegn Khagan Ahmad ungum Azera. Miklar flækjur eins og oft vill verða og Hilmir virtist missa stjórn á stöðunni í miðtaflinu.

Mögulega kominn smá skákleiði hjá strákunum í IM-flokkunum sem er á sínu þriðja móti í röð.

Alexander Oliver tapaði líka sinni skák í dag gegn Zoran Runic (2325).

Vignir þarf 1,5 vinning í síðustu tveimur umferðunum. Hann fær svart á IM Evgeny Kardashevskiy (2443) í áttundu og næstsíðustu umferð.

GM Flokkur Vignis á Chess-Results

IM Flokkur Hilmis og Alexanders á Chess-Results

- Auglýsing -