Sex umferðum af níu er lokið á alþjóðlega mótinu í Kragerö í Noregi. Guðmundur Kjartansson og Símon Þórhallsson eru efstir íslensku keppendanna í titlaflokknum með 3½ vinning. Kristján Dagur Jónsson er í toppbaráttunni í stigaflokknum.
Tvær umferðir fara fram í dag og hófst sú fyrri kl. 9:15.
Titlaflokkurinn

Stórmeistarinn Guðmundur Kjartansson (2450) og FIDE-meistarinn FIDE-meistarinn Símon Þórhallsson (2245) hafa 3½ vinning.
Andri Freyr Björgvinsson (2096) hefur 3 vinninga en hann gerði jafntefli við svissneska FIDE-meistarann Daniel Fischer (2356) í gær. Stephan Briem (2039) hefur einnig þrjá vinninga. Hann byrjarði á þremur töpum en hefur heldur betur bitið í skjaldarrendur og hefur unnið þrjár skákir í röð.
Lenka Ptácníková (2173), Birkir Ísak Jóhannsson (2103), Benedikt Briem (2079) hafa 2½ vinning.
Aðrir hafa minna en 10 íslenskir skákmenn taka þátt.
Stigaflokkurinn
Kristján Dagur Jónsson (1797) er miklu stuði. Er í 2.-6. sæti með 5 vinninga.
Benedikt Þórisson (1790) hefur 4½ vinning.
Adam Omarsson (1546) hefur 4 vinninga.
Árni Ólafsson (1397) og Ingvar Wu Skarphéðinsson (1664) hafa 3½ vinning.
Aðrir hafa minna en 8 íslenskir skákmenn taka þátt.
- Heimasíða mótsins
- Norskt Chess-Results
- Beinar útsendingar (titlaflokkur)
- Beinar útsendingar (stigaflokkur)


















