Báðar viðureignir íslenska liðsins í 3. umferð ólympíuskákmótsins enduðu með tapi. Liðið í opnum flokki tapaði 1-3 gegn c-sveit Indlands, sem er grjóthörð sveit, og kvennaliðið laut í dúk gegn Tælandi 1½-2½.
Hjörvar Steinn og Helgi Áss gerðu jafntefli en Hannes Hlífar og Guðmundur töpuðu.


Kvennaliðið tapaði fyrir sveit Tælands með minnsta mun. Hallgerður Helga Þorsteinsdóttir vann, Lenka Ptácníkov gerði jafntefli en aðrar skákir töpuðust.
Andstæðingar morgundagsins í opnum flokki verður Nígería. Sveitin er sú 78. í stigaröð liða.
Kvennaliðið mætir sveit Mósambik sem er töluvrt veikari en sú íslenska (nr. 109).
Lið Íslands í opnum flokki skipa eingöngu stórmeistarar
- Hjörvar Steinn Grétarsson
- Hannes Hlífar Stefánsson
- Guðmundur Kjartansson
- Helgi Áss Grétarsson
- Margeir Pétursson (jafnframt liðsstjóri)
Íslenska liðið er nr. 43 í styrkleiðaröð. Alls taka 188 lið þátt.
Kvennaliðið
- Lenka Ptácníková
- Jóhanna Björg Jóhannsdóttir
- Hallgerður Helga Þorsteinsdóttir
- Lisseth Acevedo Mendez
- Tinna Kristín Finnbogadóttir
Liðsstjóri er Ingvar Þór Jóhannesson
Íslenska liðið er nr. 61 í styrkleikaröð. Alls taka 162 lið þátt.
- Heimasíða mótsins
- Chess-Results (opinn)
- Chess-Results (kvenna)
- Beinar útsendingar (opinn)
- Beinar útsendingar (kvenna)














