Rússinn Arkady Dvorkovich var rétt í þessu endurskjörinn forseti FIDE. Dvorkovich og varaforsetaefni hans, indverski stórmeistarinn, Vishy Anand fengu 157 atkvæði af 179 mögulegum.
Arkady Dvorkovich is reelected for a second term as President of the International Chess Federation, with 157 votes against 16.
Viswanathan Anand is the new FIDE Deputy President. pic.twitter.com/iTrYMTrTiG
— International Chess Federation (@FIDE_chess) August 7, 2022
Úkraínumaðurinn Andrii Baryshpolets og meðframbjóðandi hans, Daninn Peter Heine-Nielsen fengu 16 atkvæði.
157 Dvorkovich-16 Baryshpolets
— Peter Heine Nielsen (@PHChess) August 7, 2022
Í ræðum fyrir kosningarnar tilkynnti Frakkinn Bachar Kouatly að hann gæfi ekki kost á sér.
Sigur Dvorkocich kemur alls ekki á óvart en það hversu stór sigurinn hann var kom óneitanlega á óvart.
















