Aronian og Carlsen að tafli í gær. Mynd: Jurriaan Hoefsmit/Heimasíða mótsins.

Tata Steel-mótið hófst í Wijk aan Zee í Hollandi í gær. Í meistaraflokki (Masters) unnu Nodbirek Abdusattorov og  Ding Liren sínar skákir gegn Richard Rapport og Gukesh. Öðrum skákum lauk með jafntefli og þar með skák Magnúsar Carlsen og Levon Aronian.

Önnur umferð fer fram í dag. Þá teflir Carlsen við þýska ungstirnið Vincent Keymer. Skák Abdusattorov og Fabiano Caruana verður að teljast áhugaverð.

Áskorendaflokkur (Challangers)

Abhimanyu Mishra og Max Varmerdam unnu í fyrstu umferð en öðrum skákum lauk með jafntefli. Sá síðarnefnd á glæsilegan hátt.

Ítarlega umfjöllun má finna á Chess.com. 

- Auglýsing -