Mikill fjöldi Íslendinga er að tafli nú á ýmsum mótum víðsvegar um Evrópu. Flestir eru í Prag þar sem þriðja umferð á Prag Open fór fram í dag.

Tíu efstu borðin eru í beinum útsendingum en enginn Íslendingur var þar í dag. Það breytist hinsvegar í fjórðu umferðinni en þá verður Aleksandr Domalchuk-Jonasson væntanlega í beinni. Aleksandr er búinn að vinna allar þrjár skákir sínar en hann lagði írska skákmanninn Oisin O`cuilleanain (2130).

Hilmir Freyr Heimisson lagði FIDE meistarinn Frederick Licthfield (2197) og hefur 2,5 vinning.

Hilmir tekur við verðlaunagripnum og er Unglingameistari Íslands 2022

Alexander Oliver Mai (2128) og Björn Hólm Birkisson (2121) unnu einnig sínar skákir og hafa 2 vinninga.

Jafntefli í sínum skákum gerðu þeir Bárður Örn Birkisson (2179), Davíð Kolka (1959) og Aron Þór Mai (2077). Jóhann H. Ragnarsson (1908) tapaði sinni skák.

Stórmeistarinn Margeir Pétursson (2444) tekur þátt í Pula Open í Króatíu. Margeir var í góðum gír með 5,5 vinning úr fyrstu sjö umferðunum, unnið allar skákir sínar með hvítu en jafntefli með svörtu. Hin azerska Narmin Mammadova (2221) breytti því og sneri á Margeir í skák dagsins.

Níunda og síðasta umferðin hjá Margeiri er á morgun.

Dagana 23.-25. júní fer fram HSG-Open í Hollandi. Þeir Björn Þorfinnsson og Gauti Páll Jónsson tefla á þessu hraðmóti þar sem tefldar eru tvær skákir á dag.

Björn að tafli.

Björn hóf leik á brösulegu jafntefli í fyrstu umferð gegn 72 ára 1900 stiga heimamanni en hefur spýtt í lófana og unnið þrjár skákir í röð og hefur 3,5 vinning af 4.

Skákir Björns (2. umferð var ekki í beinni)

Gauti að tafli á HSG-mótnu 2022. Mynd: Heimasíða mótsins.

Gauti Páll hefur 2 vinninga að loknum umferðunum fjórum. Gauti var í beinni í 2. umferð

Jóhann Hjartarson að tafli.

Jóhann Hjartarson hóf leik á Dortmund Sparkassen Meeting í dag en mótinu lýkur 2. júlí. Jóhann mætti efnilegum Tyrkja, Taylan Ruzgar Ince (2240) fæddur 2007. Jóhann þurfti að lúta í dúk í dag en skák hans var ekki í beinni útsendingu.

Hannes Hlífar Stefánsson teflir á sterku opnu móti í Tenerife sem hefst á morgun og fer fram 25. júní – 2. júlí.

- Auglýsing -