Enn og aftur var bráðabanadagurinn skemmtilegur og spennandi á Heimsbikarmótinu í Baku. Eftirtektarverðast í dag var klárlega sú staðreynd að Hikaru Nakamura er á heimleið. Hann var sleginn út af undrabarninu Pragganandhaa frá Indlandi. Magnus var í vandræðum en hafði það á endanum gegn unga Þjóðverjanum Vincent Keymer.
Bráðabanar dagsins
Vincent Keymer (2690) – Magnus Carlsen (2835)
Gríðarlega skemmtilegt einvígi. Magnus hafði hvítt í fyrri 25+10 skákinni. Magnus náði að véla fram hróksendatafl peði yfir og yfirleitt hefði það dugað til. En Magnus var eitthvað brothættur í dag og náði ekki að nýta sér umframpeðið og Þjóðverjinn barðist til jafnteflis.
Í seinni 25+10 skákinni náði Magnus undirtökunum í miðtaflinu með svörtu.
Hann var of fljótfær í að skipta upp hér og lék 25…He8? en þess í stað er 25…Df5! gríðarlega vænlegt á svart. Eftir fljótfærni til baka frá Keymer fékk Magnus algjört rjómaendtafl, gjörsamlega kexunnið.
Svartur er tveimur peðum yfir, riddarinn fer aftur á c4 og hvítur ræður ekki við peðin…eða það héldu allavega allir, áhorfendur, skýrendur og tölvur.
Magnus missti tvisvar af frekar einföldum …b3 leik og seinna skiptið var öllu verra.
Hér vinnur 47…b3 48.Kd3 Re3 tiltölulega auðveldlega.
„Menn eiga náttúrulega að sjá svona“
Heyrðist muldað í skúmaskotum Faxafens 12 í dag!
Keymer náði jafnteflinu en til þess þurfti hann að finna erfiða varnarleiki
t.d. 50.Bg5! hér
Keymer því búinn að þvinga einvígið í 10+10 atskákir. Fyrri atskákin var nokkuð þurr og endaði með öruggu jafntefli. Magnus hafði hvítt í seinni 10+10 skákinni. Það var loks nú sem skildi á milli. Magnus fékk hættuleg færi á kóngsvæng í Spánverjanum en náði ekki að fullnýta sér sénsana þar. Hann hélt þó alltaf aðeins betra tafli og náði að stýra því í drottningarendatafl þar sem hann náði sér í nokkur umframpeð. Nú loks náði Magnus að „sigla þessu heim“ og er kominn í næst umferð.
After a huge battle, @MagnusCarlsen is through to the Last 16 of the #FIDEWorldCup, where he'll play another chess legend, Vasyl Ivanchuk! pic.twitter.com/N5V8VIKRHD
— chess24.com (@chess24com) August 11, 2023
#Magnus Carlsen beats Vincent #Keymer in a thrilling tiebreak and is through to the next round of the #FIDEWorldCup.
📷 Maria Emelianova pic.twitter.com/CcUEq8JOX9— Caracal Reports Tv (@Caracal_Reports) August 11, 2023
Úrslit: Magnus Carlsen fer áfram 3,5-2,5
Hikaru Nakamura (2787) – Pragganandhaa (2690)
Í fyrri bráðabanaskákinni beitti Hikaru enska leiknum. Strax í 8. leik virðist Hikaru gera mistök með 8.0-0 sem klúðrar eiginlega leikjaröðinni. Nakamura tapar því manni í byrjuninni og þó hann fái bætur eru þær engan veginn nægar. Pragga tefldi af miklu öryggi og vann fyrri skákina með svörtu.
Nú voru góð ráð dýr, Nakamura varð að vinna með svörtu. Til að gera langa sögu stutta pakkaði Pragga honum gjörsamlega saman. Langt síðan Naka hefur litið svona illa út í at- eða hraðskákeinvígi.
The moment after Praggnanandhaa has sealed his spot in the last 16; Magnus gets up to congratulate him despite his own tiebreak for qualification being still in progress. #FIDEWorldCup
📷 Stev Bonhage pic.twitter.com/fyzVL0ti3o
— International Chess Federation (@FIDE_chess) August 11, 2023
Hikaru að sjálfsögðu mættur með skýringar á YouTube
Úrslit: Pragganandhaa slær út #2 Hikaru Nakamura 3-1
Peter Svidler(2688) – Nijat Abasov (2632)
Jafntefli varð í 25+10 skákinni. Í seinni skákinni fórnaði Svidler peði og reyndi að fá færi. Taktíski radarinn hjá þeim gamla missti hér af síðasta leiknum í þessu einvígi
27…Bc5! og Svidler gafst upp. Fráskákin hjá riddaranum valdar biskupinn óbeint og því fellur á f2 og tjaldið í leiðinni.
Nijat Abasov er eina von heimamanna eftir mikil vonbrigði hjá bæði Radjabov og Mamedyarov á þessu móti.
Úrslit: Nijat Abasov fer áfram 2,5-1,5
Salem A R Saleh (2661) – Daniele Vocaturo (2609)
Salem Saleh fer áfram hér, munaði mestu um að Ítalinn sprengdi sig með hvítu í fyrri 25+10 bráðabanaskákinni þannig að Arabafurstinn gat verið spakur með hvítu mönnunum í seinni skákinni og vann hana líka.
Úrslit: Salem A R Saleh fer áfram 3-1
Radoslaw Wojtaszek (2676) – Leinier Dominguez (2739)
Eftir fimm jafntefli náði Kúbverjinn fyrrverandi Leinier Dominguez að knésetja Pólverjann með hvítu gegn Najdorf.
Úrslit: 3,5-2,5 fyrir Leinier Dominguez
Jan-Krzysztof Duda (2732) – Parham Magsoodloo (2719)
Ríkjandi meistarinn kemst áfram hér. Parham vann fyrstu 25+10 skákina en Duda svaraði fyrir sig og vann svo fyrri 10+10 skákina. Duda hélt svo öruggu jafntefli í lokaskákinni og fer áfram.
Úrslit: Duda vinnur 3,5-2,5
Wang Hao (2709) – Rasmus Svane (2625)
Wang Hao náði loks að vinna eftir 8 jafntefli í röð hjá þessum köppum. Ekki vantaði þó sénsana!
Hér fórnaði Wang Hao fyrir jafntefli 39.Hxh7! sem er rétt ákvörðun 39…Kxh7 40.Dxf7 en eftir stutta umhugsun lék Svane 40…Kh6?? sem ótrúlegt en satt tapar.
Wang Hao var hinsvegar að fórna fyrir jafntefli og lék 41.Df8+?? og skákin endaði með þráskák. 41.Dg8 hefði hinsvegar verið frekar auðveldur vinningur. Það að eiga inni Rg4 í vissum stöðum plús það að Dh8+ og drottning til h4 er mát þýðir að svartur getur gefið!
Ekki var það mikið skárra í seinni 5+3 skákinni. Aftur einfaldaði Wang Hao taflið í jafntefli en átti vinning, og alls ekkert erfiðan
Players are tired and pawn endgames are tough! 47…g3! was a win for Wang Hao, but he captured on h3 instead, and the match goes to sudden-death games: https://t.co/MKXhIyjarA#FIDEWorldCup pic.twitter.com/dWNYTfVLsD
— chess24.com (@chess24com) August 11, 2023
Lykilafbrigði eftir 47…g3 er 48.Kf4 Kxc4 49.Kg4 Kd3 50.Kxh4 f4 51.Kg4 Ke3 52.h4
Hér leikum við að sjálfsögðu 52…f3! og svartur fær nýja drottningu.
After 8 draws, Wang Hao wins the 1st sudden-death game and will play Gukesh in the Last 16! https://t.co/n9KOsW4Uwn #FIDEWorldCup pic.twitter.com/VBHCFmjJLJ
— chess24.com (@chess24com) August 11, 2023
Úrslit: Wang Hao fer áfram 5-4
Ian Nepomniachtchi (2779) – Nihal Sarin (2688)
Nepo vann bráðabanann 2-0 en hann hefði auðveldlega getað verið að taka pokann sinn. Í fyrri skákinni hafði Nepo hvítt og lék illa af sér.
44.Kc1?? var skelfilegur, 44.Kd1 er jafntefli. Sarin lék 44…Df4? og endaði á að tapa. Í stað þess hefði 44…De1+ unnið nokkuð auðveldlega 45.Kb2 Be4 og svartur vinnur þar sem drottningin á enga reiti og hótunin De1-b1-a1 endar með máti.
Nepo slapp með skrekkinn og fer áfram.
Úrslit: Nepo vinnur 3-1
Vasyl Ivanchuk (2667) – Vahap Sanal (2591)
Eftir fimm jafntefli varð það gamli maðurinn, Chucky, sem að sýndi klærnar. Hann tefldi flotta pósaskák með hvítu og sendi Tyrkjann heim.
Úrslit: Ivanchuk áfram 3,5-2,5
Gukesh (2744) – Andrey Esipenko (2683)
Hér skildi nánast ekkert á milli þar til Esipenko lék skelfilega af sér í seinni 25+10 skákinni
Hér kom 43…Bd7?? og kall í hafið eftir 44.Rf8+
Úrslit: Gukesh fer áfram 2,5-1,5
Viðureignir í síðustu 16 líta því svona út
The Last 16 of the 2023 #FIDEWorldCup! pic.twitter.com/7Bre4XTwHa
— chess24.com (@chess24com) August 11, 2023
Kvennaflokkur
Bella Khotenashvili (2475) – Koneru Humpy (2553)
Sú georgíska sendi Koneru Humpy heim.
40.Da4?? reyndist lykilaugnablikið 40.He2 var nauðsynlegt. Eftir 40…Hd1 er svartur „kominn inn“ 41.Kg3 Db8+! 42.Kf2 Dh2 og stutt í tjaldið.
Elisabeth Paehtz (2471) – Ju Wenjun (2564)
Heimsmeistari kvenna varð að taka pokann. Elli Paehtz hafði haldið jafntefli í öllum skákunum en í seinni 25+10 skákinni var sú þýska með pirrandi pressu á svörtu stöðuna í tvöföldu hróksendatafli.
Hér varð pressan of mikil og 33…a4?? var slakur. 34.Hcc8 og svartur er í mátneti því hvítur á h5 ef hrókurinn reynir eitthvað
Anna Muzychuk – Maria Muzychuk
Anna fór áfram í baráttunni við Mariu. Enn og aftur endatöflin!
Maria fór hér bakvið peðið 45…Ha4?? en þetta tapar, hvítur kemst með kónginn að a-peðinu. Þess í stað hefði 45…Hb6!! haldið jafntefli. 46.Kf3 He6 og kóngurinn kemst ekkert og hrókurinn heldur hliðarpressu á peðið líkt og í Vancura vörninni frægu. Staða #66 í „100 Endgames You Must Know“
Loks náði Harika Dronavali að slá út Eline Roebers sem var búin að eiga gott mót
Upptaka af beinni útsendingu dagsins:
- Heimasíða mótsins
- Beinar útsendingar Chess.com | kvenna (skákir hefjast 11:00)
- Beinar útsendingar lichess | Kvenna














