Josef og Birkir ásamt Oliver Kovacik sem bjó um tíma á Íslandi

Það var ekki bara eitt skemmtilegasta hraðskákmót ársins í gær heldur var líka teflt fyrir utan landsteinana. Þeir Birkir og Josef halda áfram að tefla og berjast á HM. Laugardagurinn er besti dagurinn hingað til og komu tveir sigrar í hús hjá strákunum!

HM ungmenna í flokkum U12, U10 og U8 fer fram þessa dagana í Egyptalandi. Ísland á tvo keppendur á mótinu. Josef Omarsson teflir í U12 flokknum og Birkir Hallmundarson í U10. Josef hafði 1,5 vinning eftir 5 skákir en hafði mætt tveimur af fjórum stigahæstu keppendunum! Birkir hafði 3,5 vinning af 5.

Birkir fékk ungverskan andstæðing, Alek Szakolczai (1629) og lagði hann að velli. Í flokki Birkis eru 115 keppendur og er Birkir númer 34 í stigaröðinni. Birkir hefur nú 4,5 vinning af 6 og er í 7-15. sæti!

Í sjöundu umferð sem nú er í gangi mætir Birkir Ítala Riccardo Friggerio (1729).

Í 6. umferð í U12 mætti Josef egypskum strák Osama Omar Ahmed (1200) og lagði hann að velli. Josef hefur nú 2,5 vinning. 92 keppendur er í flokki Josefs sem var númer 46 í styrkleikaröðinni.

Í sjöundu umferð fær Jósef D D L N Dandeniya (1526) frá Sri Lanka.

Alls verða tefldar 11 umferðir í báðum flokkum en nú er enginn frídagur á mótinu sökum frestunar á fyrstu umferðinni.

Flokkur Jósefs á Chess-Results U12

Flokkur Birkis á Chess-results U10

 

- Auglýsing -