Adam Omarsson er efstur Íslendinga á unglingamótinu í Uppsala í Svíþjóð. Tvær umferðir fóru fram í dag þannig að þremur umferðum er lokið. Adam hefur 2,5 vinning en næstur kemur Vignir Vatnar með 2 vinninga.
Adam byrjaði á sigri gegn Juliu Ostensen (1878)
Í erfiðri stöðu kom 29.He2? sem Adam nýtti sér 29…Bf4! 30.Df3 Bh6 og hvítur tapar liði. Adam fylgdi þessu eftir með jafntefli og sigri gegn Morell bræðrum. Gegn Oscar Morell (1942) sem Adam vann var það slakur hróksleikur 36.Hd2? sem sneri taflinu Adam í vil.
Adam fékk færi á sleggju 36…Hxb5!! 37.axb5 De1+ 38.Hd1 Da5 og sóknin á a-línunni er óstöðvandi.
Vignir hefur tvo vinninga. Hann byrjaði rólega með jafntefli með svörtu gegn Vidar Grahm (2133) og svo gegn IM Hampus Sorensen (2470). Sigur kom svo í 3. umferð á afgerandi hátt gegn Victor Muntean (2092) í aðeins 14 leikjum.
Næst á dagskrá hjá Vigni er stórmeistarinn David Gavrilescu (2534) og fær Vignir hvítu mennina á morgun.
Aleksandr Domalchuk-Jonasson hefur 1,5 vinning. Hann lagði Alexander Oliver Mai í fyrstu umferðinni, gerði svo jafntefli við FM Falkevall (2280) en tapaði gegn Gavrilescu.
Stephan Briem og Alexander Oliver hafa 1 vinning. Stephan hefur fengið erfitt prógram en hann gerði gott jafntefli við Gavrilescu í 1. umferð í gær en varð að lúta í dúk gegn Hampus Sörensen (2470).
Ein umferð er á morgun og svo aftur tvær á mánudaginn. Mótinu lýkur á þriðjudaginn.
Alls eru 22 ungir og efnilegir skákmenn mættir til leiks og Íslands á fimm fulltrúa 10. unglingamótinu í Uppsala. Íslendingar hafa sótt mótið vel frá upphafi og forkólfur mótsins Carl Frederik Johansson átt gott samstarf og reynst Íslendingum vel.
Vignir Vatnar Stefánsson (2484)
Aleksandr Domalchuk-Jonasson (2392)
Stephan Briem (2144)
Alexander Oliver Mai (2118)
Adam Omarsson (1946)
Vignir er númer tvö í stigaröðinni en stigahæstur er stórmeistarainn David Gavrilescu (2534) frá Rúmeníu.
- Heimasíða mótsins
- Mótið á chess-results
- Beint á lichess
- Beint á chess.com
















