EM landsliða fer fram í Budva í Svartfjalllandi 11-20. nóvember. Ísland sendir lið í opnum flokki og kvennaflokki. Fram að móti verða liðsmenn kynntir til leiks hver á fætur og öðrum Í dag kynnum við til leiks Íslandsmeistara kvenna, Olgu Prudnykovu sem teflir í fyrsta skipti fyrir Íslands hönd í Budva.

EM-fararnir

Nafn?

Olga

Borð?

1

Hver kenndi þér að tefla og hvað varstu gamall/gömul?

Faðir minn og ég var sex ára.

Uppáhaldsskákmaður?

Judit Polgar

Hvernig er þínum undirbúningi háttað fyrir EM landsliða?

Vildi að 36 tímar væru í sólahringnum!

Hluti af hvaða landi var Svartfjallaland áður en það hét bara Svartfjallaland? (bannað að nota Google!)

Ekki hugmynd!

Hversu oft hefur þú farið á EM landsliða?

Í fyrsta skipti!

Hvaða lönd eiga landamæri að Svartfjallandlandi (Google bannað!!) – Vísbending: Landið á landamæri að fimm löndum.

Serbía, Ungverjalandi, Króatía, Makedónía og Bosnía. Ég ferðaðist í fyrsta skipti til Svartfjallalands með rútu frá Úkraínu í 20 tíma. Svo ég þekki landafræðina! ????

Hver verður fyrsti áskorandi Ding Liren?

Pragg

Hvað heitir núverandi heimsmeistari kvenna (Google bannað!)

Ju Wenjun

Hver er þín skrautlegasta sigurskák? 

Var búin að kynna mér Polugaevsky-afbrigðið í langan tíma. Þetta var minn fyrsti sigur gegn alþjóðlegum meistara í afbrigðinu.

 

Hver eru þín markmið á mótinu?

Tefla góðar skákir!

Áfram?

Ísland!

Eitthvað að lokum

Hlakka til mótsins!

 

- Auglýsing -