Vignir að tafli á HM U20 árið 2023 Mynd. David Llada

EM landsliða fer fram í Budva í Svartfjalllandi 11-20. nóvember. Ísland sendir lið í opnum flokki og kvennaflokki. Fram að móti verða liðsmenn kynntir til leiks hver á fætur og öðrum Í dag kynnum við til leiks Vignir Vatnar Stefánsson, sem teflir í fyrsta skipti á EM landsliða.

EM-fararnir

Nafn?

Vignir Vatnar Stefánsson

Borð?

Borð 3

Hver kenndi þér að tefla og hvað varstu gamall/gömul?

Pabbi kenndi mér þegar ég var 5 ára og ég var síðan mættur á mót 6 ára.

Uppáhaldsskákmaður?

Friðrik Ólafsson

Hvernig er þínum undirbúningi háttað fyrir EM landsliða?

Vera vel stúderaður, tefla mikið og síðan að sjálfsögðu landsliðsæfingar með HÓL.

Hluti af hvaða landi var Svartfjallaland áður en það hét bara Svartfjallaland? (bannað að nota Google!).

Serbía og Svartfjallaland.

Hversu oft hefur þú farið á EM landsliða?

Aldrei.

Hvaða lönd eiga landamæri að Svartfjallandlandi (Google bannað!!) – Vísbending: Landið á landamæri að fimm löndum.

Serbía, Króatía Bosnía Albania og Kósóvó

Hver verður fyrsti áskorandi Ding Liren?

Nakamura

Hvað heitir núverandi heimsmeistari kvenna (Google bannað!)

Ju Wenjun

Hver er þín skrautlegasta sigurskák?

Ég tefli svo leiðinlega að ég á ekki margar skrautlegar en mér datt þessa í hug.

Hver eru þín markmið á mótinu?

Tapa ekki skák.

Áfram?

Helgi!

Eitthvað að lokum

Lífið er veisla!

- Auglýsing -