UM ungmenna (u14-u18) fer fram í Montesilvano á Ítalíu dagana 13.-24. nóvember. Hvorki meira né minna en 12 íslensk ungmenni taka þátt. Fram að móti verða íslensku fulltrúarnir kynntir til leiks – 3-4 á dag!
Nú er kynntur til leiks Gauti Páll Jónsson, annar fararstjóri/þjálfari hópsins.
HM-fararnir
- FM Aleksandr Domalchuk-Jonasson (u18)
- Benedikt Briem (u18)
- Benedikt Þórisson (u18)
- Þorsteinn Jakob F Þorsteinsson (u18)
- Ingvar Wu Skarphéðinsson (u16)
- Adam Omarsson (u16)
- Iðunn Helgadóttir (u16)
- Mikael Bjarki Heiðarsson (u14)
- Matthías Björgvin Kjartansson (u14)
- Markús Orri Jóhannsson (u14)
- Markús Orri Óskarsson (u14)
- Guðrún Fanney Briem (u12)
- FM/FT Björn Ívar Karlsson (Fararstjóri og þjálfari)
- Gauti Páll Jónsson (Fararstjóri og þjálfari)
Nafn
Gauti Páll Jónsson.https://skak.is/2023/11/11/hm-farinn-gauti-pall-fornadi-hrok-a-f7/
Flokkur?
Fararstjóri / þjálfari ásamt Birni Ívari
Hver kenndi þér að tefla og hvað varstu gamall/gömul
Pabbi kenndi mér mannganginn þegar ég var um 7 ára gamall. 8 ára gamall fór ég að sækja æfingar hjá Hróknum og síðar TR.
Uppáhaldsskákmaður?
Jóhann Hjartarson. Náði gríðarlega langt sem skákmaður, er með fjölbreyttan og skemmtilegan skákstíl og hefur ánægju af því að tefla.
Hvernig er þínum undirbúningi háttað fyrir HM ungmenna?
Vona að kaupæði mitt á chessable komi þátttakendum að gagni. Ég geri alltaf eitthvað skáktengt á hverjum degi ásamt hreyfingu.
Besta skákin
Mér hefur alltaf þótt vænt um skák mína á WOW air mótinu 2014 gegn Sverri Erni Björnssyni. Helgi Ólafsson birti þá skák í Morgunblaðinu ásamt skýringum. Þematísk hróksfórn á f7 í Sikileyjavörn þar sem hrókurinn sem lúrir á a3 bætist líka við sóknina, þetta fannst mér skemmtilegt.
Hver eru þín markmið á mótinu?
Tapa ekki skák.
Eitthvað að lokum?
Heyri miklir hæfileikamenn um ferlið
Þá fylgja þeir því eftir í verki
Heyri miðlungsmenn um ferlið
Þá halda þeir sér ýmist við það eða glata því
Heyri aular um ferlið
Þá fá þeir hláturskast
Ef þeir hlægju ekki
Þá stæði ferlið ekki undir nafni
Lao Tze
















