Dagur Ragnarsson endaði hlutskarpastur á Skákþingi Reykjavíkur sem lauk í dag. Fyrir umferðina voru Dagur og Gauti Páll Jónsson efstir og jafnir. Dagur vann sína skák en Gauti tapaði þannig að titillinn er Dags í dag!

Skák Gauta var fyrr til að klárast og eiginlega snemma ljóst að stefndi í sigur Dags. Gauti fór óvarlega í miðtaflið eftir bras í byrjuninni og lenti snemma í hremmingum sem hann átti einfaldlega ekki afturkvæmt úr. Jóhann var vandanum vaxinn í flækjunum og vann mann.

Dagur var þegar hér var komið við sögu með mjög trausta stöðu og í nánast engri taphættu. Gat Dagur því bætt stöðu sína jafnt og þétt peði yfir og pressulaust
Arnar Milutin missti þráðinn í taktískri stöðu gegn Lenku.
27.Hxf7? sneri taflinu svörtum í vil en 27.Re4! hefði verið skemmtilegur leikur með skemmtilega dýnamísku ójafnvægi!

Skák Benedikts og Mikael Bjarka var skemmtileg!
Hilmir Freyr þurfti að hafa mikið fyrir sigri sínum á Kristjáni Erni!
Úrslit lokaumferðarinnar

Dagur kemur því í mark með 8 vinninga úr skákunum 9. Jóhann Ingvason stal öðru sætinu á stigum frá Gauti Páli sem endar í 3. sæti.

Fínn stigagróði hjá Gauta, Adam og Benedikt. Markús Orri einnig flottur með +71 stig!
Aukaverðlaun enduðu þannig.
A – Keppendur 11-20 í stigaröð
Ingvar Wu Skarphéðinsson
B – Keppendur 21-30 í stigaröð
Mikael Bjarki Heiðarsson
C – Keppendur 31-40 í stigaröð
Markús Orri Jóhannesson
D – Keppendur 41-50 í stigaröð
Ketill Sigurjóns
- Mótsfrétt með tímamörkum, verðlaunum, tiebreaks o.fl.
- Skákir á livecloud
- Skákir á lichess
- Mótið á chess-results


















