Við gerum vikuna í skák upp á sunnudögum hér á Skak.is. Nú tökum við fyrir vikuna 19-25. febrúar. Vikan að þessu sinni í rólegri kantinum en það er bara lognið á undan storminum!

  • Vikan hófst sem fyrr á Skákkvöldi TG þar sem Sigurjón Haraldsson varð hlutskarpastur með 7 vinninga af 8 mögulegum.
  • 25 skákmenn mættu til leiks á Þriðjudagsmót TR þar sem Kristján Örn Elíasson skilaði sér í mark með fullt hús.
  • Öðlingamótið hélt áfram síðastliðinn miðvikudag.Davíð Kjartansson er stigahæstur keppenda og hefur fullt hús ásamt Þorvarði F. Ólafssyni og Kristjáni Erni sem vann óvænt gegn Lenku. 

 

  • Þeir Gunnar Björnsson og Ingvar Þór Jóhannesson kíktu í spjall til Kristjáns „Við Skákborðið“ og mest var rætt um hið vinsæla Reykjavíkurkskákmót
  • Skráning á Reykjavíkurskákmótið stendur nú í 432 en einhverjir Íslendingar hafa bæst við auk hrókeringa á erlendum keppendum.
  • Frumvarp til laga um skák var kynnt í vikunni.
  • Eftir tíu umferðir af 11 á Skákþingi Vestmannaeyja eru þeir  Benedikt Baldursson og Hallgrímur Steinsson eftir og jafnir með 8 vinning af 10 mögulegum. Spennandi lokaumferð framundan!

  • Baráttan um stigahæsta Indverjann virðist breytast í hverri viku! Anand minnti enn og aftur á „tímaleysi“ sitt og vann góðan sigur á kandídatnum Abasov í Bundesligunni og er nú kominn á topp 10 og er stigahæstur Indverja aftur….allavega í bili!
- Auglýsing -