Síðari hluti Íslandsmóts skákfélaga hófst í kvöld í Rimaskóla með 6. umferð í úrvalsdeild, Kvikudeildinni. Eftir fyrri hlutann stóðu Fjölnismenn ansi vel að vígi, höfðu unnið allar sínar viðureignir.

Fjölnismenn í oddastöðu og mættu KR-ingum í 6. umferðinni.
Fjölnir – KR

Fyrirfram hefði verið hægt að ímynda sér að KR hefði getað staðið í Fjölni og veitt þeim keppni. Niðurstaðan varð hinsvegar ótrúlegt!
Litháinn Pultinevicius varðist tilburðum þýska landsilðsmannsins Donchenko og knúði fram uppgjöf með fallegri taktík í lokin.
41.g5! og þar sem 41…fxg5 er mát í einum og 41…Kxg5 er mát í tveimur er aðeins eftir 41…Dxg5 sem tapar hrók 42.Dxb2 og svartur gafst upp.
Á öðru borði missti Lomasov algjörlega tökin á sinni stöðu með hvítt og á þriðja borði tefldi Tomas Laurusas þungan pósa og lagði Vignir Vatnar að velli í þungum pósa. Vignir varðist vel lengst af en Litháarnir eru einfaldlega grjótharðir!

Áfram hélt Fjölniseimreiðin á fjórða borði. Eistinn sterki, Kaido Kulaots, kreysti fram vinning gegn Arnari Gunnarssyni með fágaðri „pósataflmennsku“. Kaido stjórnaði hvítu reitunum fullkomlega og passífur svartreitabiskup hvíts mátti sín lítils, lærdómsrík skák!
Meira af því sama var á boðstólnum á neðri borðunum og það var aðeins Arnþór Einarsson sem bjargaði heiðri KR-inga í þetta skiptið með því að ná jafntefli á 8. borði.
Ótrúlegur sigur Fjölnismanna, 7,5-0,5!

TG – Víkingar

Snemma stefndi í óefni hjá Víkingum þar sem Þorfinnsbræður áttu báðir slæman dag, trúa líklega á hlaupaár! TG snemma komnir í 2-0 og mögulega óvænt úrslit í uppsiglingu.

Davíð Kjartansson minnkaði muninn fyrir Víkinga með snaggaralegum sigri á Baldri.
Davíð hafði yfirburðastöðu nánast alla skákina og kláraði með „Fréttablaðsleik“ 35.Bxg6! hxg6 36.Dxg6+ Bg7 37.Hxf7 Dxf7 og…..
38.Hh8!! snyrtilegt með eindæmum!
Stríðsgæfan féll að lokum með Víkingaklúbbnum þegar Jóhann náði að halda jafntefli eftir erfiða vörn og Pakleza sneri illa á Hjörvar eftir að hafa haft verra tafl mest alla skákina. Tímahrakið kostaði Hjörvar skákina.

54…Kd7? skildi Hjörvar eftir í erfiðri vörn, þess í stað hefði 54…Hxf5+! dugað til vinnings. Eftir 55.Kxf5 Kd5! 56.g7 Kd4! fer kóngurinn einfaldlega næst á d3.
57.g8=D gengur ekki þar sem 57…Bxg8 58.Hxc2 er svarað með 58…Bh7+
Svekkjandi tap hjá Hjörvari og Víkingaklúbburinn slapp með skrekkinn.

TR – TV

Snemma var ljóst í hvað stefndi í þessari viðureign. TR vann nokkuð öruggan sigur en Vestmanneyingar bitu þó frá sér. Skemmtilegasta skákin var kláralega snörp viðureign Aleksandr Domalchuk-Jonassonar og Guðmundar Gíslasonar.
Hafi skák Sasha og Guðmundar verið skemmtileg þá er erfitt að segja slíkt hið sama um langdregna skák Guðmundar Kjartanssonar og Filip Boe Olsen. Guðmundur hafði lengst af þægilegra tafl með gott rými en missti tökin og tapaði peði. Vörn Guðmundar var hinsvegar til fyrirmyndar og komst hann í endatafl sem hefði átt að haldast. Eitthvað skorti þó upp á baráttuþrek Guðmundar í lokin og hann missti jafnteflisstöðu niður tap í 136 leikjum.
Verður að segjast eins og er að að þetta var heiðarleg tilraun til að skáka einni langdregnsutu og leiðinlegustu skák sögunnar á Íslandsmóti skákfélaga sem greinarhöfundur á skuldlaust…..og hér kemur hún, tefld 2017/18!


Segja má að Fjölnismenn hafi hert tökin eftir umferð kvöldsins en þó er fræðilegur möguleiki á að helgin endi ekki með hamingju í Grafarvoginum. Til þess að það gerist verða strákarnir í Taflfélagi Reykjavíkur að byrja á því að leggja Fjölnismenn að velli í föstudagsumferðinni. Takist það ekki eiga Fjölnismenn sigurinn næsta vísan!

Á morgun föstudag, er tefld 7. umferð í úrvalsdeild.
Hallfríður Sigurðardóttir fær þakkir fyrir myndir frá umferðinni!














