Spennandi Öðlingamóti lauk á miðvikudagskvöldið og fóru leikar þannig að Lenka Ptacnikova endaði í toppsætinu. Fyrir lokaumferðina var Lenka efst ásamt Haraldi Baldurssyni og Páli G. Jónssyni.

Þórður Arnarson gerði Páli grikk á öðru borði og lagði hann að velli. Það þýddi að sigurvegari skákarinnar á efsta borði ætti sigurinn vísan og Lenka greip tækifærið og lagði Harald Baldursson að velli.

Kristján Örn Elíasson náði sigri í lokaumferðinni og lyfti sér því upp í 2. sætið á stigaútreikningum sem hann átti skilið eftir framúrskarandi mót framan af!

Skákir lokaumferðarinnar voru ekki sýndar beint sökum grunnskólamóts sem var að klárast á sama tíma.

Úrslit lokaumferðar:

Lokastaðan

- Auglýsing -