Sjötta umferð Skákþings Íslands hefst kl. 15 í dag. Umferðin í gær var snörp og snaggaraleg. Helgi Áss er efstur með 4½ vinning, Hilmir Freyr og Vignir Vatnar hafa 4 vinninga og Hannes Hlífar þriðji með 3½ vinning.
Fyrirfram verður skák Helga Áss og Hilmis að teljast aðalviðureign dagsins en auk hennar eru margar aðrar áhugaverðar skákir. Aldursforsetarnir Héðinn og Hannes mætast. Vignir teflir við Dag Ragnarssonar. Úkraínuslagur Sasha og Olgu. Landsliðsmennirnir Guðmundur og Hjörvar mætast.
Umferð dagsins:
- Helgi Áss Grétarsson (4½) – Hilmir Freyr Heimisson (4)
- Vignir Vatnar Stefánsson (4) – Dagur Ragnarsson (2½)
- Héðinn Steingrímsson (2½) – Hannes Hlífar Stefánsson (3½)
- Aleksandr Domalchuk-Jonasson (2½) – Olga Prudnykova (1½)
- Guðmundur Kjartansson (1½) – Hjörvar Steinn Grétarsson (1½)
- Bárður Örn Birkisson (1) – Lenka Ptácníková (1)
Umferðin hefst kl. 15. Bein lýsing Ingvars Þórs hefst um tveimur tímum síðar.
Tilvalið að kíkja á skákstað. Skáktilboð á veitingastaðnum og hægt að fylgjst með og spjalla um leið.
- Chess-Results
- Skákskýringar á YouTube
- Beint á Chess.com
- Beint á Lichess
- Beint á Chessbase
- Auglýsing -















