Setja í mitt dagatal
Hvenær:
14. júní, 2025 @ 13:00 – 15. júní, 2025 @ 16:00
2025-06-14T13:00:00+00:00
2025-06-15T16:00:00+00:00
Hvar:
Húnabyggð
Húnabyggð
541
Ísland
Húnabyggð
541
Ísland
Aðalfundur SÍ
Aðalfundur Skáksambands Íslands verður haldinn laugardaginn 14. júní 2025 á Blönduósi kl. 13.
Árssskýrsla og ársreikningar: https://skak.is/skaksamband/um-ssi/arsreikingar-og-skyrslur/
Lagabreytingatillögur
Þrjár lagabreytingatillögur frá laganefnd SÍ liggja fyrir:
https://skak.is/2025/05/15/tillogur-ad-lagabreytingum-fyrir-adalfund/
https://skak.is/2025/05/15/tillogur-ad-lagabreytingum-fyrir-adalfund/
Framboð til embættis forseta SÍ
Tvö framboð hafa borist: Jóhanna Björg Jóhannsdóttir og Kristján Örn Elíasson.
Nánar um framboðin: https://skak.is/2025/06/05/tveir-frambjodendur-til-embaettis-forseta-skaksambands-islands/
Nánar um framboðin: https://skak.is/2025/06/05/tveir-frambjodendur-til-embaettis-forseta-skaksambands-islands/
Framboð í aðal- og varastjórn SÍ er nægjanlegt að tilkynna á sjálfum aðalfundinum.
Kjörbréf
Hér að neðan fylgir óútfyllt kjörbréf.
Hér að neðan fylgir óútfyllt kjörbréf.
Kjörbréf má senda með tölvupósti á skaksamband@skaksamband.is eða til formanns kjörbréfanefndar, Helga Áss Grétarssonar, helgigretarsson@gmail.com.
Einnig er hægt að leggja fram kjörbréf á aðalfundinum.
Atkvæðisréttur:
Samkvæmt 6. gr. laga SÍ:
,,Við atkvæðagreiðslu á aðalfundi fer hvert félag með eitt atkvæði enda geti það sýnt fram á a.m.k. 10 félagsmenn með lögheimili á Íslandi og virka skákstarfsemi. Eitt atkvæði bætist við hjá félagi fyrir hverja sveit sem það sendir á Íslandsmót skákfélaga það árið. Standi aðildarfélag í gjaldfallinni skuld við sambandið hefur það ekki rétt til að eiga fulltrúa með atkvæðisrétt á aðalfundi. Við atkvæðagreiðslu um kjörbréf í upphafi fundar skal gilda sú regla, að hvert félag fari ekki með fleiri atkvæði en það hafði á aðalfundi árið áður. Hver kjörinn aðalfundarfulltrúi fer aðeins með eitt atkvæði. Ekki er heimilt að greiða atkvæði samkvæmt umboði eða bréfleiðis. Við atkvæðagreiðslur á aðalfundi ræður einfaldur meirihluti atkvæða, nema um þau mál sem sérstaklega eru tilgreind í þessum lögum.“
- Auglýsing -











