Stórmeistarinn Vignr Vatnar Stefánsson (2500) lauk í gær leik á hraðmóti í Kanada sem var lítið fjallað um hér á Skak.is. En förum yfir gang mála á mótinu. Teflt var yfir sex daga, níu umferðir og tveir tvöfaldir dagar. Vignir var númer 2 í styrkleikaröð á mótinu á eftir hinum feykisterka Jorden van Foreest. Segja má að þetta mót hafi verið upphitun en framundan er feykisterkt lokað mót, Maplewood Chess Club Invitational, þar sem Vignir tekur þátt í lokuðu móti ásamt van Foreest, Ivan Saric, Aryan Tari og fleiri sterkum stórmeisturum.
Í fyrstu þremur umferðunum var Vignir með ryksuguna á lofti. Andstæðingarnir kannski ekki þeir sterkustu en hann lagði 1900, 2000 og svo 2100 stiga mann í fyrstu þremur umferðunum. Erfitt er oft að meta menn útfrá stigum í dag og geta skákmenn með þessi stig á köflum verið grjótharðir!
Í fyrstu umferð virtist 1900 stig andstæðingur Vignir, Maxim Rousskikh (1916) þó nokkurn veginn tefla á því getustigi. Vignir hafði hvítt gegn Caro-kann og Rousskihk tefldi alltof passíft og gaf Vigni frítt spil að valta yfir sig á kóngsvængnum og tapaði svo liði samviskusamlega, nokkuð mótspilslaust!
Í 2. umferð þyngdist róðurinn örlítið þar sem Vignir hafði nú svart gegn Chu Hang Zhang (2026). Nú var það Vignir sem tefldi Caro-kann og fékk auðvelda tafljöfnun í miðtaflinu. Hvítur fór svo að gefa eftir rými og ég er nokkuð viss um að um leið og Vignir lék peði sínu á f4 reitinn var hann 99.99% viss um að hann myndi vinna þessa skák sem hann og gerði.
Þriðja umferðin var svo erfiðasti sigurinn af þessum þremur enda sterkari andstæðingurinn. Adam Rafael (2161) mætti Catalan-byrjun Vignis með traustu afbrigði. Útkoman varð endatafl og þurfti Vignir að fara í svíðings-sokkana til að klára þessa skák. Vignir reyndar yfirleitt flottur í endatöflunum!
Athugið að í skákinni er DGT-villa sem Kanada-mennirnir hafa ekki lagað. 7…Dd7 var ekki leikið heldur 7…Dxd1. Næstu leikir í skránni er DGT-forritið að reyna að laga villuna en staðan er rétt eftir 10.Hxd1 sem ætti í raun að vera 8.Hxd1 eins og skákin tefldist.
Í fjórðu umferð gerði Vignir jafntefli við lettneska landsliðsmanninn og stórmeistarann Tom Kantans (2471). Vignir hafði svart og úrslitin því góð en þeir munu einnig mætast á Maplewood mótinu. Tölvumatið var nánast alla skákina í núlli en sveiflaðist í örstund í sitthvora áttinu en aldrei meira en sem neður peði í mat. Jafntefli því rökrétt úrslit.
Í fimmtu umferð mætti Vignir úkraínska stórmeistaranum Dmitry Komarov (2444) sem er hálfgerð goðsögn í skákheiminum eftir ógleymanlegar lýsingar á Heimsmeistaramótinu í at- og hraðskák þar sem hann fór á kostum með frösum sem nú eru orðnir goðsagnakenndir á ensku með sterkum hreim! Best er bara að skoða þetta myndband hér að neðan af skák Nakamura, gerist varla betra!
Í skák þeirra hafði Vignir hvítt en hér kom fyrsta tap Vignis. Vignir tefldi peðsfórnarafbrigði gegn Frakkanum en Komarov virtist vandanum vaxinn og varðist sóknartilburðum Vignis og braust svo sjálfur í gegn.
Sjötta umferðin sem var sama dag og Komarov skákin var auðveld fyrir Vigni sem vann að eigin sögn nokkuð örugglega gegn Sririam Sarja (2138) frá Indlandi. Skákin var ekki beint, aðeins 5 efstu borðin fengu þann heiður.
Í sjöundu umferð var Vignir aftur kominn í beinar útsendingar. Vignir vann þá ótrúlega auðveldan sigur gegn kúbverskum stórmeistara Reynaldo Gonzalez-Quevdeo (2353). Kúbverjinn lék samviskusamlega af sér manni snemma tafl, svokallaður afleikur, sem núverandi og fyrrverandi formaður Taflfélags Reykjavíkur urðu einhvern veginn ekki varir við frá andstæðingum sínum á þeirra ferðalögum nýverið í 18 kappskákum!
Vignir kom sér svo í toppbaráttuna af krafti með sigri í 8. umferð. Þar lá í valnum heimamaðurinn og alþjóðlegi meistarinn Oliver-Kena Chiku-Ratte (2314). Vignir tefldi hálfgert „nýmóðins“ drottningarbragð með svörtu þar sem svartur teflir mjög aktíft og ýtir peðum sínum á kóngsvæng. Vignir fékk mjög aktífa stöðu með biskupaparið og lagði Kanadamanninn að velli.
Eftir þennan góða sprett fékk Vignir úrslitaskák við Jorden van Foreest. Með sigri endurðu þeir báðir efstir með 7,5 vinning en eftir mikla baráttu hafði Foreest sigur þegar Vignir lék af sér í endatafli sem var fræðilegt jafntefli. Skákin varð mikil baráttuskák. Vignir fórnaði peði og var að eltast við að hafa nægilegar bætur fyrir peðið.
Barátta Vigni skilaði að lokum endatafli sem hann hefði átt að halda.
Hér hefði 73.d7 dugað til jafnteflis eftir 73…Kxe3 74.d8=D f1=D 75.Dxh4 og hvítur á að halda velli þó svartur geti eitthvað reynt að búa til hótanir með hættulegan riddara en staðan er fræðilegt jafntefli. Vignir lék 73.Rf1?? og tapaði fáeinum leikjum síðar. Ritstjórn rámar í svipað endatafl fyrir ekki alls löngu sem Vignir tapaði líka!
Vignir fær annan séns á Maplewood gegn van Foreest!
Lokaniðurstaðan varð sú að van Foreest endaði með 8,5 vinning og svo komu nokkrir jafnir með 7 vinning og Vignir í sjötta sæti með 6,5 vinning. Vignir stendur í stað stigalega eftir mótið.















