Iðunn Helgadóttir teflir á HM ungmenna.

Iðunn Helgadóttir sem nýverið var valinn í Ólympíulið Íslands í kvennaflokki situr nú að tafli í B-flokki á opnu móti í Zadar í Króatíu. Með henni í för er faðir hennar Helgi Pétur Gunnarsson sem líka er að tefla á mótinu.

Sjötta umferð fór fram í dag og rennum aðeins yfir árangurinn hingað til.

Iðunn mætti stigalausum Slóvena í fyrstu umferð og lagði hann að velli. Í 2. umferð mætti hún reyndar ísraelskum alþjóðlegum meistara sem fjölmargir Íslendingar hafa mætt á mótum t.d. í Tékklandi snemma á þessari öld. Þar og í næstu umferð gegn ungum og efnilegum Pólverja varð Iðunn að lúta í dúk.

Staðan var löguð í fjórða umferð gegn stigalágum andstæðingi og svo kom tap í 5. umferð og sigur í 6. umferð í dag.

Iðunn hefur því 3 vinninga að loknum 6 umferðum. Töpin eru dýr með K-stuðull 40 en sigrarnir gefa á móti vel. Í sjöundu umferð er andstæðingurinn Zvonimir Grgas (1736).

Helgi er að standa sig prýðilega, vann í dag og hefur 4 vinninga af 6 mögulegum með aðeins eina tapskák. Hann mætir A.Nenovu (1947) í sjöundu umferðinni.

Mótið á chess-results

- Auglýsing -