Sjöunda umferð var tefld í dag á Spilimbergo Open, opnu móti á Ítalíu í samnefndum bæ Þeir Helgi Áss Grétarsson og Aleksandr Domalchuk-Jonasson tefla á mótinu.
Í sjöundu umferðinni mætti Helgi Aleksandr Savanovic (2337) sem er IM frá Bosníu. Helgi hafði hvítt og virtist vera að fánokkuð vænlegt miðtafl en lék þá af sér og tapaði skipamun. Þrátt fyrir fína baráttu var taflinu ekki viðbjargandi.
Domalchuk hafði hvítt gegn CM Arsh Shaik (2218) frá Indlandi. Skákin varð mikil baráttuskák úr Catalan-byrjun en Sasha virtist aldrei í neinum vandræðum. Hann náði að hafa Indverjann undir eftir mikla baráttu.
Streymarinn Levy Rozman tefldi mikla rússíbanaskák í umferðinni sem vert er að skoða! Ekki oft sem biskup og peð eiga í fullu tré við drottningu!
Báðir íslensku keppendurnir hafa nú 4,5 vinning. Í áttundu umferð hefur Helgi svart gegn FM Benedikt Dauner (2342) en Aleksandr mætir Mattia Pegno (2150).
Spilimbergo Open er 9 umferða opið mót sem fram fer í ítalska bænum Spilimbergo frá 9-15. ágúst. Mótið er fyrir skákmenn yfir 2000 elóstigum með yfir 150 skákmenn. Belginn Daniel Dardha er stigahæstur keppenda of meðal þátttakenda er YouTube-stjarnan Levy Rozman sem eltist nú við stórmeistaratitilinn. Helgi Áss er númer 12 í stigaröðinni og Aleksandr er númer 30. Tímamörk eru 90+30

















