Hvor þessara manna tekur við forsetaembætti FIDE í dag?

Kosið verður um nýjan forseta FIDE í dag og dagurinn markar því mikil tímamót því Kirsan Nikolayevich Ilyumzhinov lætur formlega af völdum eftir 25 ár.

Þrír menn eru í framboði: Arkady Dvorkovich, Rússlandi, Georgios Makropoulos, Rússlandi, og Nigel Short, Englandi. Baráttan er talin standa á milli þeirra tveggja fyrst nefndu.

185 þjóðir hafa kosningarétt. Til að sigra í fyrsta umferð þarf 50% atkvæða + 1 eða 93 atkvæði. Nái því engin verður kosið aftur og sem fyrr verða þremenningarnir í framboði. Þá einfaldlega vinnur sá sem fær flest atkvæði:

Bein textalýsing

Bendi á regluleg tíst frá Chess.com.

14:17 Arkady Dvorkovich er nýr forseti FIDE, vinnur með 103 atkvæðum gegn 78!

13:30 Kosningu lokið! Talningu beðið með mikilli eftirvæntingu.

11.49 Kosningar hafnar! Fulltrúi Afganistan fyrstur í kjörklefann.

11:40 Makropoulos búinn að sína kynningu. Kosningar hefjast brátt. Nú verður bara kosið á milli tveggja.

11:27 Makropoulos með sýna kynningu. Ekki næstum því áhrifamikil og hjá Dvorkovich og virðist fá mun muna klapp.

11:24 Short dró rétt í þessu til baka framboð sitt og lýsir yfir stuðningi við Dvorkovich.

11:11 Kynningu Dvorkovich er lokið. Óhætt er að segja að hann hafi fengið afar góðar undirtektir. Nigel Short er næstur.

10:57 Kynning Dvorkovich er hafin.

10.46 Tíu mínútna FIDE-hléi lokið sem var um 40 mínútur. Nú fara að kynningar frambjóðenda að hefjast.

10:03 Hlé á fundi!

10:00 Það er ljóst að það verið að lesa í línurnar því það eru handauppréttingar og menn að spá í það hverjir kjósa hvorn frambjóðenda.

9:45. Brátt fara fram kosningar um hveða þrír verða talningarmenn! Fimm í framboði. Ótrúlegt að menn ná ekki að koma sér saman um jafn einvaldan hlut! Mögulega er tilgangurinn að lesa í línurnar.

9.35: Farið yfir reglurnar og útskýrt að þær séu í samræmi við það sem stendur hér að ofan. Til að vinna í fyrstu umferð þarf 93 atkvæði. Í annarri umferð vinnur sá sem fær flest atkvæði – og ekki þarf 50%.

9.15: Málefni Skáksambands Búlgaríu rædd en FIDE leggur til að Skáksambandið núverandi verði endanlega rekið úr FIDE en fyrrverandi forseti þess, Silvio Danaliov, hefur verið ásakaður um að hafa stolið peningum. Tilgangurinn með því er sá það geti nýtt skáksamband verði formlega viðurkennt og hafið starfsemi. Það var samþykkt með mikilum meirihluta.

8.52: Fjármál kláruð og reikningar samþykktir. Næsta mál á dagskrá eru málefni Skáksambands Búlgaríu sem hefur verið vísað úr FIDE.

8.30: Sem fyrr eru fjármál Afríku rædd en margir skákstjórar þar segjast ekki hafa fengið greitt fyrir sína vinnu. Einhverjar peningar virðast hafa týnst. Það er mikið verkefni framundan, fyrir næsta forseta FIDE, að koma skikki á fjárlagsleg málefni heimsálfurnar en Skáksamband Afríku hefur t.d. ekki eigin reikning.

8:17: fjárhagsleg Afríku er mikið rædd en innan heimsálfurnar eru mikil innbyrðisátök.

7:57: Enn eru reikningar ræddir. Hart sótt að forystu FIDE úr ýmsum áttum.

7.23: Umræður um reikninga FIDE. Mikil spenna í loftinu. Nigel Short gagnrýnir að Agon samningurinn sé ekki opinber.

6.50: Nafnakalli lokið.

5.55: Nafnakall hafið.

5:45: Bachar Koutaly, varaforsetaefni, Dvorkovich, gegnrýnir meðhöndlunum umboða.

5:30: Fulltrúinn frá Haiti gerir athugasemd við að hafa ekki atkvæðisrétt. Svar FIDE er að Haiti sé ekki fullgildur meðlimur.

5:16: Fundurinn formlega hafinn. Látinna félaga minnst. Efstur á blaði var vinur okkur Stefán Kristjánsson. Omar Salama situr hliðina á mér og verður mér til halds og trausts í dag.

4:20 Fundurinn hefst kl. 5:00. Búast má við miklum átakafundi.

 

- Auglýsing -