Sunnudaginn 14. október kl. 18:00 mætir Team Iceland afar sterku liði Serba í Heimdeildinni í netskák.

Við mættum þeim í vináttukeppni í haust og höfðum betur í leifturskákinni en töpuðum í hraðskákinni. Ljóst er að þeir munu senda umtalsvert fjölmennara og sterkara lið til leiks að þessu sinni og er því full ástæða til að stilla upp eins sterku og fjölmennu liði gegn þeim og mögulegt er!

Serbía er eitt af sterkustu liðunum í Heimsdeildinni, ásamt Rússum og Úkraínu, og töpðu þeir engri viðureign á síðasta keppnistímabili. Þeim gekk þó illa í úrslitakeppninni (efstu 4) og töpuðu þar fyrir Rússum og Úkraínumönnum.

Skoða má allar fyrri viðureignir Serba hér.

HVENÆR?

Keppnin verður með sama sniði og undanfarnar vikur, en fyrst er tefld leifturskák og hefst sú viðureign kl. 18:00. Því næst er tefld hraðskák og hefst sú rimma kl. 18:20. Athugið að keppendur þurfa að skipta um mót á milli viðureigna, en einfaldast er að nota “Tournaments” flipann á Chess.com til þess.

Þegar keppninni við Serbíu er lokið, er boðið upp á aukamót (Lett mot) fyrir þá sem vilja tefla meira. Það hefst kl. 19:00 og verður notast við tímamörkin 3|2.

DAGSKRÁIN

Úrslit 1. umferðar

Team Iceland er efst í 1. deild. Rússland og Úkraína eiga þó enn eftir að tefla sína viðureign, en henni var frestað og fer líklega fram í næsta mánuði.

Round 1 (w/b 1st October) Match links:
Team Peru 27 33 Team Slovakia https://www.chess.com/club/matches/live/1744/games
Argentina Live Chess 12.5 61.5 Team Iceland https://www.chess.com/club/matches/live/1718/games
Srbija Tim 41 19 Ecuador Live Chess https://www.chess.com/club/matches/live/1748/games
Team Ukraine Team Russia

 

HVAÐ ÞARF AÐ GERA TIL AÐ TAKA ÞÁTT?

Keppendur þurfa að ganga í hópinn https://www.chess.com/club/team-iceland á Chess.com áður en keppnin hefst. Tengill á mótið verður birtur fyrir mót en hann má einnig finna í “Tournaments” flipanum á Chess.com áður en keppnin hefst.

Allir eru hvattir til að ganga í liðið, en ekki er gerð krafa um styrkleika. Því fleiri – því betra!

Dagskráin í vetur (Áætlun)

v/hefst v/lýkur Vika nr. Umferð Teflum við Fer fram
01. okt 07. okt 1 1 Argentina Live Chess 07. okt kl. 20
08. okt 14. okt 2 2 Srbija Tim 14. okt kl. 18
15. okt 21. okt 3 Frí
22. okt 28. okt 4 3 Team Ukraine
29. okt 04. nóv 5 4 Team Russia
05. nóv 11. nóv 6 Frí
12. nóv 18. nóv 7 5 Ecuador Live Chess
19. nóv 25. nóv 8 6 Team Slovakia
26. nóv 02. des 9 Frí
03. des 09. des 10 7 Team Peru
10. des 16. des 11 Adjustments
17. des 23. des 12 8 Úrslit 4 eftstu og 4 neðstu
24. des 30. des 13 Frí
31. des 06. Jan 14 9 Úrslit 4 eftstu og 4 neðstu
07. Jan 13. Jan 15 Frí
14. Jan 20. Jan 16 10 Úrslit 4 eftstu og 4 neðstu
21. Jan 27. Jan 17 Adjustments

TENGLAR

  • Allar viðureignir Team Iceland til þessa: Hér
  • Meðlimir Team Iceland: Hér
  • Leifturskákin, staða og pörun: Hér
  • Hraðskákin, staða og pörun: Hér
  • Reglur LCWL: Hér
- Auglýsing -