Dagur Ragnarsson Fjölnismaður (Mynd: Hallfríður Sigurðardóttir)

Undanrásir Íslandsmótsins í netskák fóru fram í gærkvöld, miðvikudaginn 27. ágúst á skákþjóninum Chess.com þar sem hart var barist í 11. umferðum af 3+2 netskákum. Í boði var keppnisréttur á Íslandsmótinu í netskák sem verður í beinni á Sjónvarpi Símans og netrásum RÍSÍ eins og í fyrra!

Leikar enduðu þannig að Dagur Ragnarsson varð hlutskarpastur með 9,5 vinning úr umferðunum 11 og var landsliðsmaðurinn í nokkrum sérflokki, tapaði ekki einni einustu skák þótt hætt var hann kominn í nokkrum þeirra!

Nokkrir titilhafar fylgja með inn í lokamótið. FIDE-meistararnir Jón Kristinn og Bárður Örn fengu 8 vinninga. Með 7,5 komu Birkir Ísak Jóhannsson og Dagur Andri Friðgeirsson nokkuð óvænt. Daði Ómarsson vann sér einnig sæti en gaf það eftir. CM Björn Hólm var inni á oddastigum á kostnað FM Róberts Lagerman en þar sem Daði tekur ekki þátt fær Róbert sæti á mótinu! Markús Orri var grátlega nálægt en varð úti á oddastigum.

Forsetinn Jóhanna Björg Jóhannsdóttir tók kvennasætið en keppnin þar var mjög hörð og réðust úrslit ekki fyrr en í lokaumferðinni.

Lokamótið fer fram með áþekku fyrirkomulagi og á síðasta ári. Sjálf 16 manna úrslitin hefjast 7. september.

Keppendur í 16 manna úrslitum verða valdir á eftirfarandi hátt.

  1. Keppendur sem komust í átta manna úrslita á Síminn Invitational vorið 2025 (varamenn úr undanrásunum núna)
  2. Þrír stigahæstu skákmenn landsins með virk FIDE-hraðskákstig 1. ágúst 2025 sem falla ekki undir nr. 1 (varamenn næstu virku menn á hraðskákstigum)
  3. Fjórir efstu í undanrásunum sem fram fara 27. ágúst (varamenn úr undanrásunum)
  4. Efsta kona í undanrásunum sem fram fara 27. ágúst (varamenn næstu konur úr undanrásunum) Ef kona nær að tryggja sig inn í gegnum undanrásirnar (lið 3) bætist þetta sæti við undanrásirnar óháð kyni.

Í úrslitakeppninni verða tefld sex skáka einvígi – sá vinnur sem fyrr fær 3½ vinning. Í úrslitum verður 10 skáka einvígi – sá vinnur sem fyrr fær 5½ vinning.

Gert er ráð fyrir að úrslitin fari fram 30. nóvember. Nánar verður greint frá fyrirkomulagi og dagsetningum úrslitakeppninnar á næstu dögum.

Verðlaun í aðalkeppninni

  1. 175.000 kr.
  2.   75.000 kr.

Engin verðlaun, nema keppnisréttur í úrslitakeppninni, eru í undanrásunum.

Eftirtaldir hafa þegið boð um þátttöku. Átta sæti verða í boði í undanrásunum.

  1. GM Vignir Vatnar Stefánsson (átta manna úrslit)
  2. IM Aleksandr Domalchuk-Jonasson (átta manna úrslit)
  3. GM Bragi Þorfinnsson (átta manna úrslit)
  4. FM Ingvar Þór Jóhannesson (átta manna úrslit)
  5. FM Símon Þórhallsson (átta manna úrslit)
  6. GM Helgi Áss Grétarsson (skákstig)
  7. IM Björn Þorfinnsson (skákstig)
  8. GM Jóhann Hjartarson (skákstig)
  9. IM Dagur Ragnarsson (undanmót)
  10. FM Jón Kristinn Þorgeirsson (undanmót)
  11. FM Bárður Örn Birkisson (undanmót)
  12. Birkir Ísak Jóhannsson (undanmót)
  13. Dagur Andri Friðgeirsson (undanmót)
  14. CM Björn Hólm Birkisson (undanmót)
  15. FM Róbert Lagerman (undanmót)
  16. WCM Jóhanna Björg Jóhannsdóttir (undanmót)
- Auglýsing -